Lífið

„Ég er pabbinn sem var ó­léttur“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Gabríel og Kría Marín dóttir hans. Gabríel segir ekkert hafa breytt honum eins og foreldrahlutverkið.
Gabríel og Kría Marín dóttir hans. Gabríel segir ekkert hafa breytt honum eins og foreldrahlutverkið. Vísir/Vilhelm

Gabríel Brim er trans maður sem eignaðist barn. Hann segir það hafa komið skemmtilega á óvart hversu vel fæðingin og meðgangan hafi gengið, og hversu vel tekið var á móti honum í heilbrigðiskerfinu. Hann segir foreldrahlutverkið hafa breytt honum og hann vilji ekkert frekar en að vera dóttur sinni góð fyrirmynd. 

Gabríel er í fæðingar­or­lofi með dóttur sinni. Hún er sex mánaða og verður bráðum til­búin að smakka á mat en hingað til hefur hún verið á brjósti, hjá Gabríel. Hann er trans maður sem fæddi barn og er með það á brjósti.

„Mig langaði alltaf að fá að upp­lifa að ganga með barn og fæða. Það var rosa­leg upp­lifun. Það eru sterkar og nýjar til­finningar. Öðru­vísi sjónar­horn. Maður heyrir fólk tala um það en svo ein­hvern veginn skilur maður það ekki fyrr en það gerist,“ segir Gabríel.

Hann segir margt auð­vitað hafa breyst við fæðinguna og með­gönguna en eitt sem hafi komið á ó­vart sé það hversu opinn hann er orðinn.

„Núna þegar ég er orðin for­eldri vil ég vera sýni­legri. Mér finnst mikil­vægt að vera góð fyrir­mynd fyrir dóttur mína. Að þora að vera ég sjálfur. Þótt það komi bak­slag, að vera sýni­legur,“ segir Gabríel og að ekkert hafi breytt honum jafn mikið og að verða for­eldri.

Gabríel langaði alltaf að upplifa meðgöngu. Mynd/Margrét Seema Takyar

Hann hefur síðustu fimm árin unnið á leik­skóla, er að læra leik­skóla­liðann og líkar það afar vel að vinna með börnum.

„Það er rosa­lega erfitt að vinna með börnum og fá ekki „baby fe­ver“,“ segir Gabríel léttur en auk þess er hann líka lista­maður. Enda alinn upp í mikilli lista­manns­fjöl­skyldu en amma hans er Elísa­bet Jökuls­dóttir.

Gabríel stefnir á að vera í fæðingar­or­lofi í eitt ár eða svo, en þar sem hann er starfs­maður á leik­skóla gerir hann ráð fyrir að koma dóttur sinni að snemma. „Það er léttir að þurfa ekki að stressa sig á því.“

Tók pásu til að eignast barn

Gabríel var byrjaður í hormóna­með­ferð áður en hann varð ó­léttur en tók pásu til að eignast barn.

„Ég byrjaði á hormónum 2018 og hætti á þeim ári síðar. Það voru ýmsar á­stæður fyrir því að ég hætti og þar á meðal að mig langaði að upp­lifa að ganga með barn. En ég var líka á slæmum stað og hormónarnir fóru mjög illa í mig. Mig langaði því að ná mér á strik and­lega áður en ég byrjaði aftur,“ segir Gabríel.

Trans málefni verða ofarlega á heimili Gabríels og Kríu. Vísir/Vilhelm

Hann segist vera farinn að huga að því að byrja aftur á með­ferðinni en geti það ekki fyrr en hann hættir með dóttur sína á brjósti. Brjósta­gjöfin hafi gengið vel frá upp­hafi og hann vilji ekki hætta strax.

„Hún tók strax vel við og ég hef alltaf ein­hvern veginn náð að fram­leiða akkúrat nóg fyrir hana. Það er svo magnað að hún hafi verið að nærast á líkama mínum á með­göngunni og svo heldur hún því á­fram eftir að hún er fædd. Það er svo ó­trú­lega gaman að upp­lifa þetta.“

Hélt hann myndi fæða í bílnum

Spurður hvort hann langi í fleiri börn segist hann ekkert úti­loka.

„Mig langar kannski í fleiri börn, en ekki endi­lega að ganga með þau. Með­gangan gekk svo vel og fæðingin að ég get eigin­lega ekki toppað það,“ segir hann en barnið var fætt um tveimur klukku­stundum eftir að hann mætti á Fæðingar­heimilið í Reykja­vík.

„Ég var í níu sentí­metra út­víkkun þegar ég mætti á Fæðingar­heimilið,“ segir hann og hlær.

Með honum í fæðingunni voru bæði móðir hans og eldri systir.

„Ég er ekki á bíl þannig mamma þurfti að sækja mig heim. Ég hélt ég myndi bara fæða í bílnum þetta gekk svo hratt,“ segir Gabríel sem nýtir mikils og góðs stuðnings fjöl­skyldu sinnar.

„Ég á þrjár systur og þær voru allar rosa­lega spenntar fyrir með­göngunni, alveg frá því að ég til­kynnti. Þær vissu að ég yrði einn og það var aldrei stress að ég gæti þetta. En dóttir mín hefur gert þetta auð­velt líka. Það hefur allt gengið svo vel.“

Stressaður fyrir viðbrögðum annarra

Þó svo að fæðingin og með­gangan hafi gengið vel og segist Gabríel hafa verið á­kaf­lega stressaður þegar hann upp­götvaði að hann væri ó­léttur. Bæði fyrir við­brögðum annarra og veg­ferðinni sem hann átti fram undan í heil­brigðis­kerfinu.

„Ég var pínu stressaður, í byrjun með­göngunnar, að þurfa að hringja inn á heil­brigðis­stofnanir og út­skýra að ég væri trans maður. En það gekk ó­trú­lega vel og ég fékk svo góðar við­tökur hvert sem ég fór,“ segir Gabríel.

Gabríel tók á meðgöngunni þátt í leiksýningunni Góða ferð inn í gömul sár þar sem atriðið hans fjallaði um meðgönguna og hann var með „gender reveal“ í lokin. „En ég sýndi auðvitað ekkert kynið. Bara regnboga-confetti. Það var svo frábært að vinna með Evu Rún Snorradóttir.“ Mynd/Leifur Wilberg

Hann segir að hann hafi sjálfur þurft að mæta sína eigin for­dómum í ferlinu. Í byrjun með­göngunnar hafi hann þurft að stað­festa hana hjá kven­sjúk­dóma­lækni og hafi að­eins fengið tíma hjá eldri karl­manni.

„Ég var ekki viss hvort ég vildi fara því læknirinn var karl­maður. Ég gerði bara ráð fyrir því að af því að þetta var eldri maður myndi hann koma með ein­hver trans­fóbísk komment. En það var ekkert þannig. Hann var bara spenntur yfir með­göngunni og trans mál­efnum.“

Hann segir það sem fylgdi í með­göngu­eftir­litinu og fæðingunni sjálfri hafa gengið svaka­lega vel. Það sé að­eins eitt til­felli sem hann man eftir þar sem einn læknirinn vissi ekki hvað hann átti að segja.

„Hann stoppaði og þorði ekki að segja ó­léttur, heldur sagði að ég væri með barn í maganum, en mér fannst það eigin­lega bara fyndið,“ segir Gabríel og hlær.

Þannig ég at­hugaði málið og sá þá að ég var skráður sem fæðingar­for­eldri, sem mér fannst svo fal­legt. Það er það sem ég er

Hann segir ljós­mæður Fæðingar­heimilisins hafa tekið afar vel á móti sér í bæði með­göngu­eftir­liti og fæðingu.

„Það var frá­bær upp­lifun. Þar var ein­mitt alltaf talað um með­göngu­vernd, í stað þess að tala um mæðra­vernd,“ segir hann og telur ó­lík­legt að svona smá­at­riði skipti aðra máli, en geri það fyrir hann.

„Systir mín spurði mig svo hvort ég væri skráður sem móðir eða faðir á fæðingar­vott­orðinu og ég var ekkert búin að spá í því. Þannig ég at­hugaði málið og sá þá að ég var skráður sem fæðingar­for­eldri, sem mér fannst svo fal­legt. Það er það sem ég er.“

Gabríel segir þetta þó ekki alls staðar eins og að sem dæmi hafi hann verið skráður sem móðir á um­sókn til Fæðingar­or­lofs­sjóðs.

Aprílforeldrar en ekki aprílmömmur

Þá eru önnur dæmi. Gabríel var til dæmis í bumbu­hóp fyrir apríl­börn á Face­book. Það eru hópar sem oftast eru kenndir við mæðurnar en Gabríel segist hafa haft sam­band við stofnanda hópsins sem breytti nafni hópsins þegar börnin voru fædd í apríl­for­eldrar 2023. „Það var skemmti­legt.“

Hann segir að þessar góðar við­tökur hafi komið honum í opna skjöldu. Um­ræða í sam­fé­laginu og á sam­fé­lags­miðlum hafi verið haturs­full. Hann nefnir sem dæmi um­ræðu á vegum Sam­takanna 22 sem hafi verið veru­lega haturs­full í garð trans fólks, og segist óttast hvert þau beina reiði sinni næst.

„Það hefur verið svo mikið af nei­kvæðum um­mælum og bak­slagið mikið. Það er þung­lyndis­legt að sjá. Ís­land hefur alltaf verið svo framar­lega í bar­áttunni fyrir trans fólk og ég hef alltaf upp­lifað mikið öryggi hérna,“ segir Gabríel.

Betra að spyrja en sitja heima með fordóma

Hann segist ekki eiga einn heima­bæ eða hverfi sem hann kenni sig við en að honum hafi alltaf líkað vel við sig í Vestur­bænum, hjá ömmu sinni, og á Seyðis­firði þar sem hann átti heima um stutta stund þegar hann var nítján ára.

„Ég var búinn að koma út sem trans maður en var ekki byrjaður á hormónunum. Ég var rosa­lega stressaður að flytja þangað og bjóst við miklum for­dómum. Það var auð­vitað eitt­hvað um þá, en miklu minna en ég bjóst við. Að mestu var þetta for­vitni. Það besta var að fólk bara kom til mín og spurði mig út í að vera trans, í stað þess að vera heima með for­dóma,“ segir Gabríel og að honum þyki alltaf betra að fólk geri það.

„Bara tala við trans fólk og kynnast þeim. Fyrir marga þarna var ég fyrsta trans manneskjan sem þau voru að hitta, og eina trans manneskjan í bænum.“

Gabríel er einstæður faðir en nýtur góðs stuðnings móður sinnar og systra. Vísir/Vilhelm



Hann segir þetta eina á­stæðu þess að hann vildi nú segja sína sögu. Til að sýna fólki já­kvæða upp­lifun og sögu trans manns.

„Ég er trans og ég er hamingju­samur með þessa á­kvörðun. Ég er á­kveðinn og öruggur í því hver ég er,“ segir hann en viður­kennir þó að um­ræðan hafi haft á­hrif á hann. Hann upp­lifi til dæmis meira stress að segja fólki frá því að hann er trans en áður.

„En það er að­eins farið að minnka aftur. Þetta er auð­vitað minni­hluta­hópur sem er mjög há­vær. En það er sér­stakt núna að vera for­eldri. Að vera trans maður sem gekk með barnið sitt. Alltaf þegar ég segi fólki frá því þá kemur alltaf svona hugsun: „Hvernig svar fæ ég núna“, en alltaf er það já­kvætt. Margir eru hissa, en þeir eru alltaf já­kvæðir.“

Mamma eða pabbi?

Þegar Gabríel varð ó­léttur var hann búinn að vera án hormóna­með­ferðar í um tvö ár. Hann segir að fólk hafi sýnt því mikill skilning þegar hann til­kynnti um ó­léttuna en hann hafi fengið sömu spurninguna frá mörgum: „Ertu mamma eða ertu pabbi?“

Gabríel segist hafa farið fram og til baka með svarið við þessari spurningu.

„Núna segi ég að sé ég sé pabbi hennar og finnst mikil­vægt að gefa sama svarið. Ég hafði smá á­hyggjur af þessu og vildi ekki að þetta yrði ruglings­legt fyrir hana. En hún elst upp með mig sem trans pabba og það er normið hennar,“ segir hann og að margir spyrji hann ein­mitt að þessu.

Hvort hann óttist að þetta verði ruglings­legt fyrir hana.

„Að ég sé pabbi hennar en hafi gengið með hana. Þetta er eitt­hvað sem allir hin­segin for­eldrar hafa fengið að heyra. Hvort það sé ekki ruglings­legt fyrir börnin þeirra að eiga tvær mömmur eða tvo pabba, eða trans for­eldra. Það verða ef­laust spurningar þegar hún verður eldri. En ég held þetta verði ekkert ruglings­legt. Þetta er það sem hún elst upp með og er hennar norm. Ég er pabbinn sem var ó­léttur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×