Fótbolti

Bryndís Arna valin best og Katla efnilegust

Dagur Lárusson skrifar
Bryndís Arna Níelsdóttir.
Bryndís Arna Níelsdóttir. Vísir/Vilhelm

Bryndís Arna Níelsdóttir, leikmaður Vals, var valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna árið 2023 af leikmönnum deildarinnar. Katla Tryggvadóttir var valin efnilegust annað árið í röð.

Bryndís Arna hefur farið á kostum í liði Vals í sumar en hún er markahæst í deildinni með 15 mörk en hún tók við verðlaunum sínum fyrir leik Vals gegn Breiðablik í kvöld. 

Bryndís var efst í kjörinu en á eftir henni voru þær Katie Cous­ins úr Þrótti , Sandra María Jessen úr Þór/​KA og Arna Sif Ásgrímsdóttir úr Val.

Katla Tryggvadóttir var síðan valin efnilegust annað árið í röð en hún tók einnig við verðlaunum sínum í kvöld. Næstar á eftir Kötlu í kjörinu voru þær Fann­ey Inga Birk­is­dótt­ir og Ísa­bella Sara Tryggva­dótt­ir úr Val og Sæ­dís Rún Heiðars­dótt­ir úr Stjörn­unni.

Katla Tryggvadóttir.Vísir/Hulda Margrét



Fleiri fréttir

Sjá meira


×