Samstarf

Ein­stök verslun í 50 ár

Fjarðarkaup
Fjarðarkaup hefur verið vinsæl verslun í hálfa öld. Þessa dagana fagnar verslunin 50 ára afmæli sínu en hátíðarhöldunum lýkur á laugardag. Kíktu í Fjarðarkaup og fagnaðu með okkur!
Fjarðarkaup hefur verið vinsæl verslun í hálfa öld. Þessa dagana fagnar verslunin 50 ára afmæli sínu en hátíðarhöldunum lýkur á laugardag. Kíktu í Fjarðarkaup og fagnaðu með okkur!

Verslunin Fjarðarkaup hefur verið samofinn sögu Hafnarfjarðar undanfarna hálfa öld en hún heldur upp á 50 ára afmæli sitt dagana 21.-30. september.

Þessa daga er boðið upp á margar skemmtilegar uppákomur og frábær afmælistilboð auk þess sem skemmtilegur afmælisleikur verður í gangi meðan afmælisveislan stendur yfir segir Ingibjörg Sveinsdóttir, mannauðs- og markaðsstjóri Fjarðarkaupa.

Sigurbergur Sveinsson var einn fjögurra stofnanda Fjarðarkaups og er í dag aðaleigandi verslunarinnar.

„Við munum bjóða upp á á gómsætt smakk í mat og drykk alla dagana frá helstu birgjum okkar en líka frá frábæra bakaríinu okkar. Ég vil hvetja alla til að taka þátt í afmælisleiknum en hann má finna á vefnum okkar og verða fjöldi glæsilegra vinninga í boði.“

Fjarðarkaup hefur verið samofinn sögu Hafnarfjarðar undanfarna hálfa öld auk þess sem íbúar í nágranna sveitafélögum hafa haldið tryggð við hana lengi.

Afmælisdagskráin sjálf er fjölbreytt og skemmtileg. „Síðustu daga hafa Klói kókómjólk ásamt íþróttaálfinum og Sollu kíkt í heimsókn og við höfum boðið upp á köku, mjólk og ís. Dagana 28.-30. september höldum við svo áfram að bjóða upp á köku, mjólk og ís og á föstudag og laugardag kíkir hinn síkáti Klói kókómjólk aftur í heimsókn til okkar. Nánari tímasetningar má finna á vef okkar." 

íþróttaálfurinn og Solla kíktu í heimsókn í vikunni og vöktu mikla kátínu meðal gesta á öllum aldri.

Farsæl 50 ár fyrir neytendur

Verslunin Fjarðarkaup var upphaflega opnuð við Trönuhraun í Hafnarfirði þann 7. júlí 1973 og var því með fyrstu lágvöruverðsverslunum sem opnaðar voru hér á landi. Stofnendur og fyrstu eigendur voru annars vegar hjónin Ingibjörg Gísladóttir og Sigurbergur Sveinsson og hins vegar Valgerður Jónsdóttir og Bjarni Blomsterberg. Ingibjörg og Sigurbergur keyptu fyrirtækið að fullu á 20 ára afmælisárinu árið 1993 og hafa Fjarðarkaup síðan verið í eigu fjölskyldunnar

Bæjarbúar hafa alla tíð haldið tryggð við Fjarðarkaup.

Sigurbergur Sveinsson er enn þann dag í dag aðaleigandi verslunarinnar og með honum starfa við reksturinn synir þeirra Ingibjargar heitinnar: Sveinn og Gísli. Þeir eiga síðan börn sem einnig hafa staðið vaktina um lengri eða skemmri tíma. Já, það er og verður fjölskyldubragur á Fjarðarkaupum.

Hér má kynna sér sögu Fjarðarkaupa í stuttu máli:





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×