Innlent

Sá sem varað var við hlaut þungan dóm fyrir ­brot gegn barni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Foreldrar og forráðamenn í Kársnesskóla voru varaðir við einstaklingi sem væri ekki æskilegt að börn væru í kringum.
Foreldrar og forráðamenn í Kársnesskóla voru varaðir við einstaklingi sem væri ekki æskilegt að börn væru í kringum. Google

Miðlæg rannsóknardeild lögreglu hefur til rannsóknar mál karlmanns sem skólastjórnendur í Kársnesskóla vöruðu við á þriðjudaginn. Samkvæmt heimildum fréttastofu er til skoðunar hvort maðurinn hafi gerst sekur um blygðunarsemisbrot í vesturhluta Kópavogs með því að fróa sér í bíl í bænum.

Karlmaðurinn á að baki þungan dóm í Bandaríkjunum fyrir kynferðisbrot gegn barni.

„Viljum ekki að sé í kringum börnin okkar“

Foreldrum barna í vesturbæ Kópavogs barst póstur frá skólastjórnendum Kársnesskóla um hádegisbil á þriðjudaginn. Tæplega sex hundruð nemendur eru í skólanum á aldrinum sex til fimmtán ára.

Tilefni tölvupóstsins voru ábendingar þess efnis að í vesturbæ Kópavogs væri á ferð einstaklingur „sem við viljum ekki að sé í kringum börnin okkar“.

Foreldrar skildu hvorki upp né niður, umræður í hverfis- og foreldrahópum fóru á flug og úr varð að framhaldspóstur barst frá Kársnesskóla þess efnis að einstaklingurinn sem um ræddi hefði sýnt af sér ósæmilega hegðun. Foreldrar voru hvattir til að ræða við börnin sín um að gefa sig ekki að ókunnugum og að vera á varðbergi. Málið hefði verið tilkynnt til lögreglu og vonandi myndi rannsókn ljúka sem fyrst.

Braut á stúlku

Samkvæmt heimildum fréttastofu snýst málið um karlmann sem hefur endurtekið sést í bíl í vesturhluta Kópavogs nærri stöðum þangað sem börn sækja.

Karlmaðurinn er grunaður að hafa í minnsta kosti eitt skipti fróað sér í bíl á meðan börn voru í sjónmáli. Bíllinn er skráður á karlmann á fertugsaldri sem sat inni í tæp átta ár í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á grunnskólaaldri.

Hann hefur samkvæmt heimildum fréttastofu verið búsettur á Íslandi í á annað ár.

Á borði kynferðisbrotadeildar

Þær upplýsingar fengust frá lögreglunni í Kópavogi að málið væri komið á borð miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Deildinni er skipt í tvennt. Annars vegar er kynferðisbrotadeild og hins vegar deild sem sinnir skipulagðri brotastarfsemi og meiriháttar afbrotum.

Hjá kynferðisbrotadeild lögreglu fengust þær upplýsingar að á borði deildarinnar væri mál til rannsóknar sem gæti tengst umræðunni í vesturbæ Kópavogs.


Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×