Fótbolti

„Erum ekkert í þessu bara til að taka þátt“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að sínir menn ætli sér ekki að vera túristar í Sambandsdeildinni.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að sínir menn ætli sér ekki að vera túristar í Sambandsdeildinni. Vísir/Hulda Margrét

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að liðið sé ekki mætt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu til þess eins að taka þátt. Liðið ætli sér að sýna góða frammistöðu og með því komi oft góð niðurstaða.

Breiðablik dróst í B-riðil Sambandsdeildarinnar þar sem liðið mun mæta Gent frá Belgíu, Maccabi Tel Aviv frá Ísrael og Zorya Luhansk frá Úkraínu.

„Mér líst bara mjög vel á þetta. Þetta eru þrjú gríðarlega öflug lið og lið sem verður gaman að mæla sig við,“ sagði Óskar eftir dráttinn.

„Við vitum að Gent og Maccabi Tel Aviv eru gríðarlega öflug lið, en ég átta mig ekki alveg á styrkleika úkraínska liðsins. En ég geri ráð fyrir að þeir séu öflugir. Þeir eru kannski á skrýtnum stað að spila heimaleikina í Póllandi og svona rót á þeim en það getur vel verið að við verðum í sömu stöðu þegar kemur að heimaleikjunum.“

Klippa: Óskar hrafn eftir Sambandsdeildardráttinn

Þá segir Óskar að Blikar séu ekki mættir til þess eins að taka þátt.

„Við verðum að passa okkur á því að mæta ekki til leiks eins og einhverjir túristar,“ sagði Óskar.

„Við erum ekki að koma til að reyna að sækja einhverja stemningu eða upplifun. Við erum komnir þarna til að spila fótbolta. Við verðum að passa okkur á því.“

„Við erum ekkert í þessu bara til að taka þátt. Við viljum reyna að gera eins vel og við getum og ná í úrslit og ná góðum frammistöðum. Oft er það þannig að með góðri frammistöðu kemur góð niðurstaða og það er það sem við stefnum að.“

Viðtalið við Óskar má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×