Viðskipti innlent

Oddvar Haukur tekur við af Sig­ríði sem kveður eftir 23 ára starf

Atli Ísleifsson skrifar
Oddvar Haukur Árnason.
Oddvar Haukur Árnason. Farfuglar

Oddvar Haukur Árnason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Farfugla ses. / HI Iceland og tekur hann við starfinu af Sigríði Ólafsdóttur sem kveður eftir 23 ár hjá félaginu.

Fram kemur að Oddvar Haukur hafi starfað hjá Farfuglum síðan 2018, fyrst sem rekstrarstjóri Laugardals og síðan sem fjármálastjóri félagsins.

„Oddvar Haukur er viðskiptafræðingur að mennt og með langa reynslu af ferðaþjónustu, en Oddvar kom til Farfugla frá Norðursiglingu ehf, þar sem hann gegndi stjórnunarstöðum um árabil.

Farfuglar eiga og reka Dal HI-Hostel og Loft HI-Hostel í Reykjavík, en auk þess eru 16 HI-hostel um land allt rekin með sérleyfi af einkaaðilum. Þá rekur félagið einnig tjaldsvæðið í Laugardal.

Farfuglar hafa alla tíð verið leiðandi í sjálfbærri ferðaþjónustu á Íslandi og eru hostel félagsins í Reykjavík þau fyrstu á Norðurlöndunum til þess að hljóta umhverfisvottun frá Svaninunum, auk þess sem tjaldsvæðið er umhverfisvottað af Vakanum.

Farfuglar voru stofnaðir 1939 og eru sjálfseignarstofnun og hluti af óhagnaðardrifinni alþjóðlegri gistikeðju, Hostelling International, sem samanstendur af yfir 3.000 farfuglaheimilum (hostelum) og 3,3 milljónum félagsmeðlima, í yfir 60 löndum,“ segir í tilkynningunni. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×