Viðskipti erlent

Raf­mynta­kóngur í steininn fyrir að reyna að hafa á­hrif á vitni

Kjartan Kjartansson skrifar
Sam Bankman-Fried (f.m.) leiddur inn í réttarsal í New York í síðustu viku.
Sam Bankman-Fried (f.m.) leiddur inn í réttarsal í New York í síðustu viku. AP/Bebeto Matthews

Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, verður vistaður í fangelsi í Brooklyn fram yfir réttarhöldin yfir honum eftir að hann varð uppvís að því að reyna að hafa áhrif á framburð vitna. Fangelsið er sagt alræmt fyrir slæman aðbúnað fanga.

Dómari í fjársvikamáli Bankman-Fried skipaði fyrir um að hann skyldi færður í varðhald eftir að hann braut gegn skilmálum lausnar gegn tryggingu með því að reyna að fá vitni til þess að breyta framburði sínum. Bankman-Fried hafði verið laus gegn tryggingu á heimili foreldra sinna í Palo Alto í Kaliforníu.

Borgarfangelsið í Brooklyn í New York sem verður heimili Bankman-Fried næstu mánuði hefur verið plagað af alls kyns vandamálum, þar á meðal manneklu, rafmagnleysi og möðkuðum mat, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Fangavörður þar játaði sig sekan um að þiggja mútur fyrir að smygla fíkniefnum inn í fangelsið fyrr á þessu ári.

Lögmenn Ghislaine Maxwell, sem var sakfelld fyrir aðild að kynferðisglæpum Jeffreys Epstein, segja að skólp hafi flætt inni í klefa hennar þegar hún var vistuð í fangelsinu. Veturinn 2019 var fangelsið án rafmagns og hita í fleiri daga á sama tíma og mikið frost gerði í borginni.

Birti samskipti við fyrrverandi kærustu og reyndi að ná í lögfræðing FTX

Lewis Kaplan, dómarinn í málinu, úrskurðaði Bankman-Fried í gæsluvarðhald á föstudag. Rökstuddur grunur væri fyrir því að hann hefði að minnsta kosti tvisvar reynt að hafa áhrif á vitni frá því að hann var handtekinn í desember. Hann hefði þannig sýnt blaðamanni einkaskilaboð fyrrverandi kærustu hans sem er lykilvitni í málinu og sent fyrrverandi aðallögmanni FTX dulkóðuð skilaboð í janúar.

Bankman-Fried er ákærður fyrir milljarða dollara fjársvik hjá FTX sem var um tíma þriðja stærsta rafmyntakauphöll heims. Hann er einnig ákærður fyrir ólögleg kosningaframlög til bæði demókrata og repúblikana til þess að reyna að hafa áhrif á regluverk um rafmyntir.

Þegar Kaplan kvað upp úrskurð sinn sagði hann að fangelsið í Brooklyn kæmist hvergi á lista yfir „fimm stjörnu“ húsnæði. Hann teldi hins vegar ekki fýsilegt að senda hann í lágmarksöryggisfangelsi norðan við New York sem verjendur hans óskuðu eftir.

Réttarhöld yfir Bankman-Fried eiga að hefjast í október. Hann verður því í fangelsi að minnsta kosti þar til þeim lýkur. Bankman-Fried segist saklaus af ákærunum.


Tengdar fréttir

Saka SBF og fé­laga um hundruð ó­lög­legra kosninga­fram­laga

Bandarískir saksóknarar saka Sam Bankman-Fried, stofnanda rafmyntafyrirtækisins FTX, og samverkamann hans um fleiri en þrjú hundruð ólögleg kosningaframlög. Þeir komust hjá reglum um hámarksframlög til frambjóðenda með því að notast við leppa og félög.

Stofnandi FTX lýsir yfir sak­leysi

Fallinn stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, Sam Bankman-Fried sagðist fyrr í dag saklaus fyrir rétti í New York ríki í Bandaríkjunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×