Golf

Grill og heitur pottur í kvöld en Maho­mes-hugar­farið á morgun

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hlynur Geir Hjartarson
Hlynur Geir Hjartarson

Hlynur Geir Hjartarson, kylfingur úr Golfklúbbi Selfoss, er með fjögurra högga forystu fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Urriðavelli um helgina. Hann ætlar að njóta á morgun og sækir síðu í bók ruðningskappans Patrick Mahomes í aðdragandanum.

„Mér líður bara mjög vel. Maður er aðeins að jafna sig. Þessi hringur tók á, var aðeins upp og ofan en maður náði að klóra sig í gegnum þetta. Það var einhver reynslubanki þarna sem maður náði að sækja einhver högg í,“ sagði Hlynur Geir léttur þegar Vísir sló á þráðinn í kvöld.

Hlynur hefur spilað jafnan og góðan leik yfir dagana þrjá á mótinu hingað til. Hann fór hring dagsins á þremur undir pari og er á tíu undir parinu í heildina, fjórum höggum á undan næsta manni. Hann þakkar það hversu dugleg eiginkona hans hefur verið að draga hann á völlinn.

„Þetta er geggjaður völlur og frábært veður. Maður er í ágætis formi, konan er búin að draga mann út á völl hægri, vinstri. Hún er með svo mikinn golfáhuga að maður er í fínasta formi,“ segir Hlynur Geir.

Andri og Guðmundur komi sterkir til baka

Andri Þór Björnsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson voru efstir fyrir daginn en áttu báðir strembinn dag, hvor um sig léku þeir á fimm yfir pari vallar. Það eftir að Guðmundur Ágúst bætti vallarmetið í gær, skor sem Hlynur að vísu jafnaði síðar þann daginn. Erfiður dagur þeirra félaga skýrir að hluta hversu stór forysta Hlyns er en hann er þess fullviss að þeir félagar komi sterkir til baka á morgun.

„Golfið er svona. Þetta er óvissuferð. Þetta er hringur sem allir vilja eiga nokkuð góðan og setur tóninn fyrir lokadaginn. Það gekk ekki hjá þeim í dag en þetta eru geggjaðir kylfingar sem hafa áður verið í þessari stöðu. Þeir koma eflaust sterkir til baka á morgun, ég veit það bara fyrir víst,“ segir Hlynur Geir.

Horfir á Mahomes í kvöld, aftur

Hlynur segist þá ætla að taka því rólega í kvöld og njóta dagsins á morgun.

„Nú ætla ég að fara bara í heita pottinn og fá mér smá grill. Svo kíki ég á Quarterback lokaþáttinn á Netflix, aftur, hann var svo geggjaður. Þar var svona love it stemning í Patrick Mahomes.“ segir Hlynur en Patrick Mahomes er í sviðsljósinu í lokaþætti seríunnar er Kansas City Chiefs keppti í Ofurskálinni í vetur.

Þú mætir þá með Mahomes hugarfarið á morgun?

„Já, það er bara að njóta. Bara love it eins og hann sagði við alla gæjana í Super Bowlinu. Það er bara að njóta þess að vera kominn í þessa stöðu. Það er bara lykilatriði, annars gerist eitthvað leiðinlegt. Bara njóta.“ segir Hlynur Geir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×