Sport

Verður af meira en 300 milljónum vegna óheppislegs slyss

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hines lenti í býsna óheppilegu slysi sem verður honum dýrkeypt.
Hines lenti í býsna óheppilegu slysi sem verður honum dýrkeypt. Getty

Nyheim Hines, hlaupari hjá Buffalo Bills í NFL-deildinni, verður að líkindum af nánast öllum launum sínum á komandi leiktíð eftir óheppilegt slys í vikunni. Deila má um hversu mikla ábyrgð hann ber sjálfur á slysinu.

Hines lenti í sæþotuslysi í vikunni, líkt og Vísir hefur greint frá, en gjarnan er atvinnuíþróttamönnum ráðlagt frá því að leggja líkama sinn að veði eða stunda hættulegar íþróttir. Hines tók áhættuna og fór á sæþotu en var aftur á móti kyrrstæður á skíðum sínum við höfn þegar annar skíðamaður klessti á hann á fullri ferð með þeim afleiðingum að krossband í hné Hines er að líkindum slitið og leiktíð hans lokið áður en hún hefst.

Hann mun missa af komandi tímabili hjá Bills-liðinu og er nú í samningaviðræðum við félagið. Vegna þess að meiðslin áttu sér stað utan fótboltavallarins getur Bills neitað honum um laun á komandi leiktíð en vont getur versnað fyrir leikmanninn ef félagið fer fram á bætur frá honum fyrir að setja sig í hættu.

Hines átti að fá laun upp á rúmlega 2,5 milljón bandaríkjadala, um 330 milljónir króna, á komandi leiktíð sem þurrkast út en þá snúa meintar viðræður um það hvort Bills eigi inni frekara fé frá Hines vegna atviksins.

Hines skrifaði undir nýjan samning fyrr á þessu ári og hafði þegar fengið greidda 600 þúsund af einnar milljón dala undirskriftarbónus. Bills krefjist þess að fá hluta þess til baka og muni fresta greiðslu á 400 þúsund dölunum sem eftir standa þar til síðar. Félagið vilji einnig fá til baka 100 þúsund dali sem hann fékk í bónus fyrir að halda sér við yfir sumarið.

Bills hefur þá boðist til að greiða Hines 289 þúsund dali yfir leiktíðina sem er hæsta upphæð sem má greiða leikmanni í æfingahópi. Það er tæplega einn tíundi af þeim 2,5 milljónum sem hann fengi í laun væri hann heill.

Enn hefur ekki komist niðurstaða í málið en samningaviðræður standa yfir. Hines er samningsbundinn félaginu út leiktíðina 2024.

Hines hefur ekki verið byrjunarliðsmaður hjá Bills en var öflugur á síðustu leiktíð og er mikilvægur hluti sérhæfðs liðs Bills (e. special teams. Á síðustu leiktíð stóð upp úr frammistaða hans gegn New England Patriots, í endurkomuleik Damar Hamlin eftir hjartaáfall hans. Þar skoraði hann tvö snertimörk með hlaupi yfir völlinn endilangan eftir að hafa tekið við upphafssparki frá Patriots.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×