Innlent

Grunaður um barna­níð á Ís­landi og mörgum öðrum löndum

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Reger er grunaður um brot gegn drengjum og karlmönnum áratugi aftur í tímann.
Reger er grunaður um brot gegn drengjum og karlmönnum áratugi aftur í tímann.

Hjúkrunarfræðingurinn og presturinn Bradley Earl Reger hefur verið handtekinn í Kaliforníu og er grunaður um áratugalanga misnotkun á drengjum. Hann er grunaður um að hafa flutt drengi úr landi og misnotað þá þar, meðal annars á Íslandi.

Reger var handtekinn þann 6. júlí og er haldið í fangelsi í borginni Sacramento, höfuðborg Kaliforníufylkis. En hann er búsettur í smábænum Susanville, norðaustan við borgina.

Lögreglan er með á annan tug brota til rannsóknar nú þegar, gegn drengjum og karlmönnum á aldrinum 12 til 22 ára, en talið er að brotin séu miklu fleiri, skipti jafn vel hundruðum. Meðal annars er hann sakaður um að hafa þuklað á kynfærum þeirra undir því yfirskini að hann væri að framkvæma skoðanir á heilsugæslustöðinni sem hann starfaði á í Susanville.

Þá er hann einnig sakaður um að hafa flutt drengi með sér í kirkjulegu starfi víðs vegar um heim og brotið á þeim þar. Svo sem á hótelherbergjum og tjaldsvæðum.

Er hann meðal annars sakaður um að hafa haldið drengjunum niðri á meðan hann stakk fingrum sínum í endaþarm þeirra. Einnig að hann hafi fyrirskipað þeim að fróa sér fyrir framan hann því hann þyrfti að rannsaka sæðið.

Fréttasíðan The Daily Beast greinir frá þessu.

Trúboðaferðir

Lögreglan hefur til rannsóknar brot á nærri tuttugu ára tímabili, frá árinu 2004 til 2023. Á þessum tíma ferðaðist Reger 235 sinnum til útlanda í svokallaðar trúboðaferðir. Meðal annars til Úkraínu, Póllands, Spánar, Bretlands, Filippseyja, Suður Kóreu, Mexíkó og Íslands. Oftsinnis var hann með unga drengi með sér.

Susanville er lítill bær norðaustan við Sacramento. Lögreglan hefur marg oft haft Reger til rannsóknar vegna kynferðisbrota gegn ungmennum.Wikipedia

Ekki er loku fyrir því skotið að brotin nái lengra aftur í tímann en síðan 1986 hefur Reger verið virkur í ungmennastarfi. Svo sem í kristilegum skólum, sumarbúðum og trúboðastarfi. Samkvæmt gögnum lögreglu hefur hann meðal annars gegnt stöðu kennara, ráðgjafa, glímuþjálfara, djákna og skólastjórnanda.

Oftsinnis til rannsóknar

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lögreglan hefur afskipti af Reger. Strax árið 1986 var hann til rannsóknar vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða barni. Lögregluskýrslur þessa máls eru hins vegar glataðar.

Lögreglan í Susanville rannsakaði Reger á nýjan leik árið 2003. Svo árið 2006 og 2007. Allt vegna kynferðisbrota gegn ólögráða drengjum en engin rannsókn leiddi til ákæru.

Kirkjan sem Reger starfaði hjá, Church of Nazarene, rannsakaði hann einnig. Það er meint brot gegn 10 til 15 drengjum og nokkrum fullorðnum karlmönnum. Sendi kirkjan sín gögn til barnaverndaryfirvalda og heilbrigðisyfirvalda í október á síðasta ári.

Verði Reger fundinn sekur gæti hann átt þrjátíu ára fangelsi yfir höfði sér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×