Skoðun

Eldgos hafið - Er heimilið tryggt?

Ágúst Mogensen skrifar

Eldgos er hafið á Reykjanesskaga enn á ný, nú í norðvesturhluta Litla-Hrúts. Við mælum með að gefa viðbragðsaðilum rými til þess að kanna aðstæður og hvetjum fólk að leggja ekki leið sína að gosinu strax.

Þetta er í þriðja sinn sem gýs á Reykjanesi á stuttum tíma í kjölfar jarðskjálftahrinu. Ekki er hægt að segja til um hvað þetta jarðhræringatímabil mun vara lengi en íbúar suðvesturhornsins gætu þurft að búa við það næstu árin. Í stærstu skjálftunum nötra húsin okkar og innbú glamrar í hillum. Margir velta fyrir sér hvernig tryggingum á húsi og innbúi sé háttað og hverju þarf að huga að í þeim efnum.

Húseignin mín

Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) bætir tjón á öllum brunatryggðum fasteignum sem verða fyrir tjóni vegna eldgoss eða jarðskjálfta. Brunatryggingin sem þú ert með er skyldutrygging og því er húseignin þín tryggð sjálfkrafa. Þetta gildir um íbúðarhúsnæði, sumarhús, atvinnuhúsnæði, bílskúr og allar fasteignir. Hafa ber í huga að eigin áhætta tjóns er 2% á hverri fasteign og að lágmarki 400.000 krónur sem dregst frá tjónabótum. Á vefsíðunni nti.is má lesa um tryggingar og tilkynningu tjóna ef náttúruhamfarir verða.

Innbúið mitt

NTÍ bætir einnig tjón á innbúi og lausafé, en þó aðeins ef það er brunatryggt hjá tryggingafélagi. Alveg eins og með húseignina þína þá fer hluti af brunaiðgjaldi innbústryggingar þinnar til Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Hvað er átt við með innbúi og lausafé? Einfaldast er að útskýra það sem þá hluti sem þú flytur með þér ef þú skiptir um fasteign. Hjólhýsi, bátar og vélknúin ökutæki teljast ekki til innbús enda oftast sértryggð sem slík.

Fólk ætti að ganga úr skugga um að það sé með innbúið sitt tryggt og að innbúsverðmæti sé rétt. Ef það er langt síðan trygging var tekin gæti verið skynsamlegt að yfirfara tryggingarfjárhæðir því bætur miðast alltaf við það innbúsverðmæti sem gefið er upp á tryggingarskírteini. Eigin áhætta NTÍ í innbústjóni er 2% og að lágmarki 200.000 krónur.

En bíllinn minn?

NTÍ bætir ekki tjón á bílum nema þeir séu sérstaklega brunatryggðir. Hefðbundin kaskótrygging nær ekki yfir þessi tjón og því gæti verið skynsamlegt að brunatryggja bíla sem eru í sérstakri hættu. Almennt eru bílar ekki taldir í sérstakri áhættu í jarðskjálftum og eldgosum, þá er hægt að færa eða keyra á brott. Hver og einn þarf þó að hugsa málið hér og gera sitt áhættumat.

Gagnlegar upplýsingar og viðbrögð

Við getum komið í veg fyrir eignatjón og slys í jarðskjálftum með því að fylgja nokkrum góðum ráðum. Festum skápa og hillur og færum verðmæta og/eða hættulega hluti úr efstu hillum. Ekki sofa með þunga hluti fyrir ofan ykkur, s.s. myndir, styttur eða hillur. Ef þú ert úti þegar jarðskjálfti verður þá skaltu vera áfram úti, nema fall eða hrunhætta sé kringum þig. Ef þú ert inni þegar harður skjálfti ríður yfir þá skaltu halda þig frá gluggum en frekar leita skjóls við burðarveggi, hurðarop eða með því að skríða undir sterkbyggð húsgögn eins og borð eða rúm.

Komi til eldgoss þá er öruggast að fylgja tilmælum almannavarna og annarra viðbragðsaðila. Frekar en að flykkjast upp að gosstöðvum ættum við að halda okkur fjarri fyrstu dagana. Það er ekki hægt að segja til með öryggi hvar hraunsprungur opnast og kvikan getur verið um og yfir 1000 gráðu heit.

Hvar tilkynni ég tjón vegna jarðskjálfta eða eldgoss?

Ef svo óheppilega vill til að þú lendir í tjóni vegna jarðskjálfta eða eldgoss þá getur þú tilkynnt það til NTÍ á heimasíðunni nti.is. Þú mátt samt alveg hafa samband við þitt tryggingafélag líka ef eitthvað er óljóst og starfsmaður mun leiðbeina þér.

Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×