Innlent

Nokkuð kröftugir skjálftar og verið að skoða tvo mögu­leika

Máni Snær Þorláksson skrifar
Ennþá er ekkert eldgos hafið en nokkuð kröftugir skjálftar mældust í morgun á Reykjanesinu.
Ennþá er ekkert eldgos hafið en nokkuð kröftugir skjálftar mældust í morgun á Reykjanesinu. Vísir/Vilhelm

Nokkuð kröftugir skjálftar mældust í nótt og í morgun. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að verið sé að velta upp tveimur möguleikum í stöðunni. Þá er varað við grjóthruni á skjálftasvæðinu.

Áfram heldur suðvesturhornið að titra án þess að eldgos komi. Í nótt og í morgun hefur skjálfavirknin verið nokkuð mikil en alls hafa sjö skjálftar mælst yfir þremur að stærð síðan á miðnætti.

Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að þar sé nú verið að skoða tvo möguleika í stöðunni.

„Staðan er þannig að það komu nokkuð kröftugir skjálftar í nótt og í morgun. Þetta eru í rauninni tveir möguleikar sem við erum að velta okkur upp úr. Annars vegar að þetta sé gikkverkun á mjög nálægum sprungum á svæðinu eða þá að það sé fyrirstaða að kvikan komist ofar og hún sé mögulega að reyna brjóta sér leið lengra til norðausturs. Það svona eru tveir möguleikar sem við erum að skoða.“

Nú sé verið að skoða gögn, bíða eftir GPS hnitum og meta skjálftastöðuna. „Það er erfitt að segja til um hvað verður í rauninni þannig við bara fylgjumst vel með gangi mála.“

Þá segir hún að það sé erfitt að segja til um það hvers vegna eldgos sé ekki ennþá hafið. 

„Maður reynir að setja jörðina í svona reglur en hún hegðar sér náttúrulega alls konar. Það virðist vera einhver fyrirstaða að hún nái upp á yfirborð þannig það er bara spurning hvort henni tekst það eða ekki. Þannig við fylgjumst með,“

Vara við grjóthrunshættu

Síðan skjálftahrinan hófst síðastliðinn þriðjudag hefur fólk beðið eftir því að eldgos hefjist. Nokkuð hefur verið um mannaferðir á skjálftasvæðinu en einhver hætta er á grjóthruni þar vegna skjálftanna. „Það eru ennþá stórir skjálftar að mælast þannig við vörum við grjóthrunshættu í bröttum hlíðum,“ segir Lovísa.

Grjót hrundi einmitt á svæðinu í gær. Ragnheiður Ragnarsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ, tók eftir því að grjót hrundi á veg í nágrenni við Kleifarvatn. 

Ragnheiður var stödd ásamt eiginmanni sínum við upptök jarðskjálftans sem var 4,5 að stærð þegar hann reið yfir. Hún og eiginmaður hennar sögðust aldrei hafa upplifað annað eins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×