Viðskipti innlent

Banka­sýsla ríkisins lýsir yfir miklum von­brigðum

Árni Sæberg skrifar
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, Lárus L. Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, Óttar Pálsson, lögmaður hjá Logos, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar nýverið.
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, Lárus L. Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, Óttar Pálsson, lögmaður hjá Logos, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar nýverið. Vísir/Vilhelm

Í fréttatilkynningu segir að Bankasýsla ríkisins lýsi yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5 prósent eignarhlut ríkisins í bankanum, í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Boðað verður til hluthafafundar vegna málsins.

Þar segir að Íslandsbanki hafi með sáttinni gengist við því að hafa gerst brotlegur við ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga og laga um fjármálafyrirtæki og ljóst sé að misbrestur á fylgni bankans við lög og reglur er til þess fallinn að rýra traust almennings til fjármálafyrirtækja. 

Bankasýslan líti málið alvarlegum augum, en stofnunin fari enn með 42,5 prósent eignarhlut í Íslandsbanka og verulega hagsmuni ríkisins í öðrum fjármálafyrirtækjum. 

„Bankasýsla ríkisins hefur ákveðið að fara fram á að boðað verði til hluthafafundar í Íslandsbanka þar sem stjórn og stjórnendur bankans geri grein fyrir málinu og þeim ráðstöfunum sem gripið verður til í því skyni að endurvekja traust,“ segir í tilkynningu.

Villtu um fyrir Bankasýslunni

Íslandsbanki veitti Bankasýslu ríkisins villandi upplýsingar um fyrirliggjandi tilboð í tilboðsbókinni sem lögð var fyrir Bankasýsluna að kvöldi 22. mars 2022 með því að upplýsa ekki um að almennir fjárfestar stæðu að baki tilboði eignastýringar málsaðila og að tilboðin hefðu verið lögð fram með sama hætti og tilboð viðskiptavina verðbréfamiðlunar og fyrirtækjaráðgjafar.

Þar af leiðandi fékk Bankasýslan ekki upplýsingar um nöfn þátttakenda og fjárhæð tilboða frá hverjum og einum þrátt fyrir að upplýsingar þess efnis lægju fyrir hjá bankanum.

Bankasýslu ríkisins voru einnig veittar villandi upplýsingar um flokkun þátttakenda í útboðinu þar sem níu viðskiptavinir bankans sem stóðu að baki tilboðum í tilboðsbókinni sem lögð var til grundvallar rökstuddu mati Bankasýslunnar til fjármála- og efnahagsráðherra voru ekki flokkaðir sem fagfjárfestar á því tímamarki.

Þá veitti bankinn viðskiptavinum eignastýringar rangar og villandi upplýsingar, gegn betri vitund, í níu tilfellum um að lágmarksfjárhæð tilboða í útboðinu væri tuttugu milljónir króna þegar ekki var um slíka skilmála að ræða.


Tengdar fréttir

Sáttin birt: Flokkuðu fjárfesta ranglega, tóku ekki upp símtöl og villtu um fyrir Bankasýslunni

Seðlabankinn hefur birt samkomulag við Íslandsbanka um að ljúka máli bankans vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum. Meðal þess sem kemur fram í samkomulaginu er að stjórn bankans og bankastjóri hafi ekki innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit með fullnægjandi hætti. Þá voru átta almennir fjárfestar flokkaðir sem sem fagfjárfestar með röngum hætti.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×