Viðskipti erlent

Sor­os felur syni sínum stjórn á við­­skipta­veldinu

Kjartan Kjartansson skrifar
George Soros árið 2019. Hann er orðinn 92 ára gamall og hefur ákveðið að víkja fyrir syni sínum.
George Soros árið 2019. Hann er orðinn 92 ára gamall og hefur ákveðið að víkja fyrir syni sínum. AP/Ronald Zak

Milljarðamæringurinn George Soros ætlar að láta yngri syni sínum eftir stjórn á viðskiptaveldi sínu. Hægrihreyfingar um allan heim haf gert Soros að sérstakri grýlu en sonurinn segist „pólitískari“ en faðir sinn.

Viðskiptaveldi Soros, sem er 92 ára gamall, er metið á um 25 milljarða dollara. Alexander Soros er 37 ára gamall, eldri tveggja sona sem Soros átti með Susan Weber, annarri eiginkonu sinni. Soros á annan eldri son af fyrra hjónabandi sem var talinn líklegasti arftaki hans þar til að þeim sinnaðist.

Hatur hægrimanna á Soros tengist framlögum hans til mannréttinda- og lýðræðismála víða um heim í gegnum félagasamtökin Open Society Foundation. Orðræða þeirra um Soros einkennist einnig oft af gyðingahatri og framandlegum samsæriskenningum.

Alexander Soros segir við Wall Street Journal að hann ætli færa út kvíarnar í stuðningi við frjálslynd málefni og styrkja baráttu fyrir kosningarétti, þungunarrofi og kynjajafnrétti. Í því skyni ætli hann að nota fjölskylduauðinn til þess að styrkja frjálslynda frambjóðendur í Bandaríkjunum.

Sonurinn lýsir sjálfum sér sem „pólitískari“ en faðir sinn. Þeir hugsi hins vegar eins. Hann hefur verið formaður Open Society Foundation frá því í desember. Síðan þá segist hann meðal annars hafa hitt leiðtoga Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, Lula Brasilíuforseta og Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada.

Lýsti Alexander Soros áhyggjum af því að Donald Trump kynni að ná endurkjöri sem forseti Bandaríkjanna á næsta ári.

„Eins og ég væri til í að fjarlægja peninga úr pólitíkinni verðum við að gera það líka svo lengi sem hinir gera það,“ sagði Soros sem virtist boða að fjölskyldan ætlaði sér að láta til sín taka í framlögum til frambjóðenda þar.


Tengdar fréttir

Orban braut lög þegar hann úthýsti háskóla Soros

Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórn Viktors Orban í Ungverjalandi hefði brotið evrópsk lög þegar hún breytti reglum um æðri menntun í landinu sem leiddi til þess að alþjóðlegur háskóli sem milljarðamæringurinn George Soros stofnaði neyddist til þess að flytja nær alla starfsemi sína úr landi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×