Innlent

Alvarlegt bílslys á Suðurlandsvegi

Auður Ösp Guðmundsdóttir og Árni Sæberg skrifa
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Aðsend

Alvarlegt bílslys varð á fimmta tímanum í dag, á Suðurlandsvegi milli Hveragerðis og Selfoss.

Að minnsta kosti tveir bílar eru mjög illa farnir og tafir eru á umferð. Umferð hefur verið lokað um Suðurlandsveg á meðan viðbragðsaðilar vinna á vettvangi.

Aðsend
Aðsend
Aðsend
Aðsend
aðsend
aðsend

Fjöldi sjúkrabíla frá brunavörnum Árnessýslu og tækjabíll eru á staðnum.

Meðfylgjandi myndir eru teknar á vettvangi.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×