Neytendur

Tók eftir lækkunum sam­keppnis­aðila í að­draganda Verð­gáttar

Bjarki Sigurðsson skrifar
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus. Vísir/Sigurjón

Framkvæmdastjóri Bónus segist hafa tekið eftir verðbreytingum hjá samkeppnisaðilum í aðdraganda birtingu Verðgáttar. Rekstrarstjóri Nettó vísar ásökununum á bug. 

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld var fjallað um vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt örfáum dögum áður en Verðgáttin var gerð aðgengileg almenningi. Í Verðgáttinni er hægt að bera saman verð nokkurra vara í verslunum Bónus, Krónunnar og Nettó. 

Sagði þar Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ, að gögnin bentu á svokallaða verðþjöppun í verði á umræddum vörum áður en Verðgáttin fór í loftið. 

„Ég vil byrja á því að benda á að við fengum sendan þennan lista með þessum vörum sirka mánuði síðan. Ég tók eftir því að frá því að listinn kom út að samkeppnisaðilar fóru að lækka verð sín á þessum vörum og færðu sig nær Bónus,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, en gögnin sýna að oftar en ekki var verð sem benti til verðþjöppunar aðlagað að verði Bónus. 

Hann bendir á að vörurnar sem finna má í Verðgáttinni samsvari af tíu prósent af heildarveltu Bónus. Þá sé framleiðni þessara vara einnig um tíu prósent. 

„Það segir okkur það að Bónus ber ábyrgð á tíu prósent af endanlegu útsöluverði vörunnar. Tæplega níutíu prósent skýrast af öðrum þáttum eins og álagningu birgja og álagningu framleiðanda,“ segir Guðmundur. 

Klippa: Tók eftir lækkun hjá samkeppnisaðilum í aðdraganda Verðgáttarinnar

Í skriflegu svari til fréttastofu vísar Heiðar Róbert Birnuson, rekstrarstjóri Nettó, ásökunum um verðsamráð á bug. Forsvarsmenn verslunarinnar séu mjög ánægðir með Verðgáttina þar sem hún auðveldi neytendum að gera verðsamanburð með einföldum hætti.

„Markmið okkar hjá Nettó er ávallt að uppfylla þjónustuloforð okkar til viðskiptavina sem er að bjóða samkeppnishæf verð og við vinnum að því alla daga – það þýðir að verðin okkar taka stöðugum breytingum og við fylgjumst vel með samkeppninni til þess að tryggja að við séum að ná markmiðum okkar um að vera samkeppnishæf. Tíðar verðbreytingar endurspegla þvert á móti raunverulega og mjög virka samkeppni á markaðnum,“ segir í svari Heiðars.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×