Neytendur

Neytendur geta borið saman matvöruverð þriggja verslunarrisa

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svona birtist samanburðurinn á heimasíðu Verðgáttarinnar. Þar er hægt að púsla saman innkaupakörfu og bera saman verð.
Svona birtist samanburðurinn á heimasíðu Verðgáttarinnar. Þar er hægt að púsla saman innkaupakörfu og bera saman verð. verdgattin.is

Vefurinn Verðgáttin er nú komin í loftið en hún gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar.

Í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar segir að verð uppfærist einu sinni á sólarhring samhliða gagnaskilum frá verslunum. Neytendur geti sett upp sína eigin matarkörfu, með því að velja þær vörur og það magn sem hentar þeirra innkaupum. Þannig geta neytendur borið saman verð sinnar matarkörfu á milli verslana. 

Verslanirnar sjá sjálfar um að skila verði til Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Hér má prófa Verðgáttina.

Verðgáttin er liður í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um að fylgjast náið með þróun verðlags helstu neysluvara í samstarfi við Rannsóknarsetur verslunarinnar. 

Sem hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamninga á almennum vinnumarkaði studdi menningar- og viðskiptaráðuneytið Rannsóknasetur Verslunarinnar (RSV) um 10 milljónir króna til framkvæmdar verkefnisins. 

„Með Verðgáttinni er aðgengi almennings að upplýsingum um þróun verðlags aukið og þannig stuðlað að auknu aðhaldi á neytendamarkaði,“ segir Magnús Sigurbjörnsson forstöðumaður RSV í tilkynningu.

Fréttastofa prófaði að smella einu eintaki í matvörukörfuna af öllu því sem hægt er að bera saman. Karfan í Bónus kostar 42.294 krónur, 42.311 krónur í Krónunni og 42.136 krónur í Nettó. Munurinn á verði í verslununum þremur, miðað við upplýsingarnar sem birtast í Verðgáttinni í dag, virðist því afar lítill.


Tengdar fréttir

Mat­vöru­gátt þriggja verslana opnar brátt

Neytendur munu geta borið saman verð á matvælum í sérstakri Matvörugátt sem opnuð verður innan fárra daga. Þrjár verslanir eru þátttakendur í verkefninu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×