Hershöfðingjasonur nýr aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. maí 2023 07:00 Wissler- fjölskyldan að spjalla við Bill Clinton forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsinu á þeim tíma þegar faðir Andrews starfaði þar. Andrew er fyrir miðri mynd með rautt bindi. Andrew Wissler hefur verið ráðinn aðstoðarmaður forstjóra Síldarvinnslunnar. Andrew er sonur bandarísks hershöfðingja en leiðin lá til Íslands þökk sé ástinni sem Andrew fann við hagfræðinám í St. Paul árið 2005.
Andrew hefur störf um mánaðamótin og verður þá aðstoðarmaður Gunnþórs B. Ingvarssonar forstjóra. Andrew hefur verið fjármálastjóri Vísis hf. í Grindavík frá árinu 2015 og þekkir því vel íslenskan sjávarútveg en eins og kunnugt er festi Síldarvinnslan kaup á Vísi á síðasta ári. Síldarvinnslan er að stærstum hluta í eigu Samherja og fjárfestingafélagsins Kjálkanes Andrew er til viðtals á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir hann frá því hvernig kom til þess að hann endaði á Íslandi. „Æviferill minn er kannski flóknari en hjá mörgum öðrum. Ég er nefnilega sonur hershöfðingja í bandaríska landgönguliðinu og vegna starfa hans þurfti fjölskyldan oft að flytja búferlum og venjulega var búið á hverjum stað í stuttan tíma,“ segir Andrew. Pabbinn starfaði með Bush og Clinton Hann fæddist í Dayton í Ohio 5. október árið 1983 en fjölskyldan flutti fljótlega til San Diego í Kaliforníu. „Í San Diego bjuggum við í þrjú ár. Frá San Diego var flutt í herstöð sem nefnist Camp Pendleton en hún er suður af Los Angeles. Þar var búið í þrjú og hálft ár. Síðan lá leiðin til Virginia og sest að í Quantico og dvalið þar um eins árs skeið.“ Þá flutti fjölskyldan til höfuðborgarinnar Washington D.C. „Þar starfaði pabbi sem aðstoðarmaður forseta Bandaríkjanna á vegum hersins og var Hvíta húsið vinnustaður hans. Óneitanlega var það svolítið skrítið að heimsækja pabba í vinnuna á þessum tíma. Pabbi starfaði í Hvíta húsinu í tvö ár, fyrst með George Bush eldri og síðan með Bill Clinton. Þegar störfum í Hvíta húsinu lauk flutti fjölskyldan til Okinawa í Japan.“ Þau hafi búið á herstöð í þrjú ár. Andrew á skrifstofu sinni hjá Síldarvinnslunni í Grindavík.Síldarvinnslan „Það var afar fróðlegt að kynnast japönsku samfélagi og þar ríkti meira frelsi til að fara um en annars staðar þar sem búið var á herstöðvum. Frá Japan var flutt til Camp Lejeune í Norður Karólínu og þar var ég í efstu bekkjum grunnskóla. Þá var aftur flutt og búið í nágrenni höfuðborgarinnar en pabbi starfaði þá í höfuðstöðvum hersins í Pentagon. Ég gekk einmitt í menntaskóla á meðan við bjuggum þarna.“ Það hafi haft bæði sína kosti og galla að búa á mörgum stöðum. „Auðvitað hafði hver staður sín einkenni og lífið var býsna fjölbreytt en á móti kom að ég kynntist nánast engum jafnöldrum náið á æskuárunum. Ég á til dæmis enga nána æskuvini eins og margir eiga. Tengslin innan fjölskyldunnar urðu hins vegar afar sterk.“ Hann segir ekki hafa hvarflað að þér að mennta sig til starfa innan hersins. Náin tengsl við herinn „Nei, ég ákvað að leggja áherslu á annað. Tengslin við herinn eru afar sterk í minni fjölskyldu. Afi minn var hermaður og eins er bróðir minn í hernum. Afi barðist í síðari heimsstyrjöldinni og einnig í Kóreustríðinu og Víetnam.“ Hann flutti til St. Paul, tvíburaborgar Minneapolis, og hóf háskólanám í hagfræði. „Í háskólanum naut ég mín vel og auk þess að stunda námið var ég á fullu í fótbolta. Í háskólanum kynntist ég íslenskri stúlku sem þar var í sama námi og spilaði einnig fótbolta. Við fórum fljótlega að vera saman.“ Konan sem um ræðir heitir Erla Ósk Pétursdóttir og er dóttir Péturs Hafsteins Pálssonar framkvæmdastjóra sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis í Grindavík. Andrew og Erla Ósk með synina þrjá. Þeir eru Jón Pétur (12 ára), Róbert Ari (10 ára) og Tómas Páll (7 ára) „Staðreyndin er sú að ég vissi ekkert um Ísland áður en ég kynntist Erlu. Ég hafði þó heyrt landsins getið í kvikmyndinni Mighty Ducks sem var grínmynd og fjallaði um íslenskt íshokkílið. Ég kom í fyrsta sinn til Íslands árið 2005 og þá kom mér margt á óvart eins og til dæmis hinar björtu sumarnætur.“ Að loknu háskólanáminu vann hann í tvö ár í fjárfestingabanka í Minneapolis. Átak að aðlagast samfélaginu „Vísir hafði fjárfest í fyrirtæki í St. John‘s í Nýfundnalandi og að því kom að Erla flutti þangað til að starfa hjá þessu fyrirtæki. Hún var ein í St. John‘s í eitt ár en síðan fylgdi ég á eftir þangað.“ Þau fluttu svo til Íslands rétt eftir fjármálahrunið haustið 2008. „Í janúar 2009 fluttum við Erla til Íslands. Hún hóf störf hjá Vísi en ég byrjaði á að starfa hjá Seafood Union, sölufélagi í eigu Vísis. Í upphafi settumst við að í Reykjavík en árið 2011 var ákveðið að flytja skrifstofu Seafood Union til Grindavíkur og þá fluttum við þangað. Í Grindavík höfum við búið síðan og Grindavík er orðinn sá staður sem ég hef lengst átt heima á. Nú eigum við Erla orðið þrjá stráka á aldrinum sjö til tólf ára þannig að fjölskyldan hefur heldur betur stækkað.“ Hann segir það auðvitað hafa verið dálítið átak að aðlagast íslensku samfélagi. „En mér fannst fljótt lífstíll Íslendinga frábær. Íslendingar eru líka meira sjálfbjarga en íbúar milljónasamfélaga því sérhæfing er ekki eins mikil. Íslendingurinn bjargar sér ef eitthvað kemur upp á en leitar ekki strax aðstoðar sérfræðinga.“ Afinn gaf honum fram að jólum Þá hafi verið átak að læra íslensku. Helsta vandamálið hafi verið að Íslendingar vildu gjarnan tala við hann á ensku. „Afi og amma Erlu voru ekki sterk í enskunni og vildu geta rætt við mig og það hvatti mig til að ná einhverjum tökum á tungumálinu. Afi Erlu spurði mig fljótlega hvenær ég ætlaði að fara að tala íslensku og ég bað hann um að gefa mér tvö ár. Þá sagði hann: „Ég skal gefa þér tíma fram að jólum.“ Þetta hvatti mig ótrúlega mikið. Þegar Erla varð ólétt af elsta stráknum okkar ákvað ég líka að nú yrði ég að leggja áherslu á íslenskuna. Ég varð að geta talað við barnið mitt.“ Andrew líst vel á starf aðstoðarmanns forstjóra. „Mér líst vel á það. Auðvitað er áskorun að taka við þessu starfi en ég hlakka svo sannarlega til. Það verður gaman að fást við krefjandi verkefni með góðu fólki. Ég verð með aðsetur í Grindavík en ég mun án efa heimsækja allar starfsstöðvar Síldarvinnslunnar með reglubundnum hætti. Það verður fróðlegt og spennandi að kynnast betur þessu öfluga fyrirtæki og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þess.“
Síldarvinnslan Grindavík Bandaríkin Mest lesið Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Viðskipti innlent Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Viðskipti innlent Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Viðskipti innlent Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Viðskipti innlent Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent Tilefni til að varast svik á svörtum föstudegi Neytendur Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ Atvinnulíf Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Viðskipti innlent Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri Viðskipti innlent Fleiri fréttir DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Veiðigjald á þorski nánast tvöfaldað milli ára Ákvörðun um fjárhæð veiðigjalds seinni á ferðinni en venjulega Leggur til þrjár aðgerðir á ögurstundu fjölmiðla Áttatíu hafa sótt um nýju leiðina, Stefnir fagnar ákvörðun Seðlabankans Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Bein útsending: Orkan, álið og kísillinn Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Nefndarmaður hefði kosið að halda stýrivöxtunum óbreyttum Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Stefnir í að eitt minkabú verði eftir á landinu Ráðin nýr markaðsstjóri Nettó og Kjörbúðanna Félögin þeirra högnuðust mest Útspilið hafi komið á óvart og hætta sé á minni uppbyggingu Sjá meira