Viðskipti innlent

Telur leigu­verð of lágt og boðar hækkun

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Ölmu, segir leiguverð vera of lágt.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Ölmu, segir leiguverð vera of lágt. Vísir/Aðsend/Vilhelm

Stjórnarformaður Ölmu leigufélags segir umræðu um félagið hafa verið mjög harða og ekki í samræmi við staðreyndir um leigumarkaðinn. Húsnæði sé einfaldlega dýrt, sama hvort fólk eigi húsnæðið sjálft eða leigi það. Hann segir leiguverð of lágt og boðar hækkun. 

Leigufélagið Alma hefur verið harðlega gagnrýnt undanfarin misseri fyrir hátt leiguverð og meinta vægðarlausa leiguhækkun. Vakti það til að mynda athygli á dögunum þegar áttræður maður var borinn út úr íbúð sinni sem hann hafði á leigu hjá Ölmu.

Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Ölmu, sagði í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að honum þyki félagið alls ekki eins slæmt og margir vilji meina.

„Okkur finnst umræðan hafa verið kannski fullhörð og kannski ekki alveg í samræmi við staðreyndir um leigumarkaðinn,“ segir Gunnar. 

Það sé þó rétt að leiguverð hafi verið hækkað hjá þeim á þessu ári þegar leigusamningar hafa komið til endurnýjunar. Hann segir að síðustu ár hafi þróun á leiguverði ekki verið í samræmi við þróun á fasteignaverði.

„Til lengri tíma þá mun leiguverð fylgja margfeldi af vöxtum og markaðsverði á fasteignum. Til skemmri tíma er það bara sambland eða jafnvægi á markaði, framboð og eftirspurn sem ræður leiguverðinu.“

Hann segist átta sig á því þrátt fyrir þetta að leigan sé mjög há. Horfa þurfi á málið bæði frá sjónarhorni leigutakans og leigusalans.

„Sem verður að fá arðsemi af fjárfestingunni, annars tekur það því ekki að standa í þessari starfsemi. Hins vegar frá leigutakanum, sem er að borga mikla peninga fyrir að leigja íbúð. Það er bara þannig að húsnæði er dýrt, sama hvort þú átt og rekur það sjálfur og borgar fjármagnskostnað af því sjálfur eða hvort þú leigir,“ segir Gunnar. 

Hann telur leiguverð vera of lágt.

„Miðað við fasteignaverð eins og það er núna, vaxtastig eins og það er núna, eftirspurnina eins og hún er núna, samanborið við nágrannalöndin tel ég, og Seðlabankinn segir þetta, að leiguverð muni hækka,“ segir Gunnar. 

„Auðvitað eru þetta háar tölur, ef þú borgar 200 til 300 þúsund krónur í leigu á mánuði, það er há tala. Þessi umræða um að leiguverð sé hátt er rétt en það er af því að húsnæðisliðurinn er langstærsti útgjaldaliðurinn hjá öllum.“


Tengdar fréttir

„Það er Alma sem slær tóninn og hinir elta“

For­maður Sam­taka leigj­enda segir ekki rétt að Alma leigu­fé­lag sé ekki verð­leiðandi á leigu­markaði hér á landi. Alma slái tóninn með hækkunum og al­mennir leigu­salar elti. Hann hvetur leig­jendur hjá Ölmu til að hafna hækkunum fé­lagsins.

Fram­kvæmda­stjóri Ölmu segir út­burð allra síðasta úr­­ræði leigu­sala

Framkvæmdastjóri Ölmu leigufélags segir útburðarferli allra síðasta úrræðið sem leigusalar leiti til. Félagið geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma til móts við leigutaka í greiðsluvanda. Af og frá sé að tveggja mánaða skuld verði til þess að fólk sé borið út. Umboðsmaður skuldara segir rétt kröfuhafa mikinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×