Viðskipti innlent

Leigu­fé­lög enn spennandi fjár­festing þrátt fyrir brott­hvarf Heimsta­den

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ólafur Sigurðsson er framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.
Ólafur Sigurðsson er framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.

Leigufélagið Heimstaden mun á næstu mánuðum minnka íbúðasafn sitt á Íslandi. Ástæðan mun vera sú að lífeyrissjóðir vildu ekki fjárfesta í félaginu. Að sögn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs þýðir þetta ekki að leigufélög þyki minna spennandi vara fyrir fjárfesta. 

Í gær greindi RÚV frá því að sænska leigufélagið Heimstaden ætlaði sér að selja íbúðir sínar á Íslandi á næstu mánuðum. Félagið á um það bil sautján hundruð íbúðir á landinu en félagið mun virða uppsagnarfrest allra leigusamninga en flestir leigjendur eru með tólf mánaða uppsagnarfrest í samningum sínum.

Í janúar árið 2021 keypti Heimstaden allar eignir fasteignafélagsins Heimavellir. Viðskiptamódel Heimstaden gengur út á að lífeyrissjóðir og stofnanafjárfestar séu meirihlutaeigendur til móts við félagið. Fyrir skömmu síðan var félaginu hins vegar ljóst að íslenskir lífeyrissjóðir og aðrir fjárfestar hefðu ekki áhuga á félaginu.

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, segir að þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi ekki fjárfest í þessu tiltekna félagi þýði það ekki að leigufélög séu almennt ekki lengur góð fjárfesting.

„Við vorum í skoðun á þessum fjárfestingakost. Við höfum verið að skoða hann og fylgst með þessu félagi mjög lengi. Það hefur ekkert að gera með afstöðu okkar til þessarar viðskiptahugmyndar að safna saman eignum og reka fasteignasafn til útleigu fyrir einstaklinga,“ segir Ólafur.

Birta lífeyrissjóður átti tíu prósenta hlut í Heimavöllum en Heimstaden keypti þann hlut af sjóðnum.

„Við hefðum viljað halda því á markaði en það æxlaðist þannig að félagið var tekið af markaði og við seldum okkar hlut sem var um tíu prósent. Við höfum brennandi áhuga á þessum markaði eins og mörgum öðrum. Það er ekki hægt að túlka þetta á þann hátt að við viljum ekki fjárfesta í leigufélögum. Ég myndi ekki gera það, ekki fyrir okkar hönd,“ segir Ólafur.

Síðan þá hefur húsnæðismarkaðurinn hins vegar breyst töluvert.

„Ef leigufélög eru að kaupa þegar verðið er hátt til þess að leigja er það erfiðara. Til lengri tíma skiptir mestu máli að þegar svona safn er byggt upp er að það sé byggt upp til lengri tíma og á eins hagkvæman hátt og mögulegt er. Svo það sé hægt að vera með samkeppnishæft safn. Leigu sem margir geta greitt og eru viljugir til að leigja til lengri tíma,“ segir Ólafur.

Forsvarsfólk Heimstaden hafði ekki tök á því að ræða við fréttastofu fyrir hádegisfréttir. Óskað var eftir skriflegri fyrirspurn sem fréttastofa hefur sent og bíður svara.

Uppfært klukkan 12:50: Upphaflega kom fram að Heimstaden ætlaði að selja allar íbúðir sínar á Íslandi. Það er ekki rétt heldur ætlar félagið að minnka umsvif sín á Íslandi.


Tengdar fréttir

„Ætli ég sofi ekki bara í bílnum“

Áttræður maður var á þriðjudaginn borinn út úr íbúð sinni sem hann hafði á leigu hjá Ölmu leigufélagi. Þar bjó hann ásamt hreyfihömluðum syni sínum en þeir eru nú á götunni að eigin sögn og vita ekki hvað tekur við.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×