Samstarf

Framtíð netverslunar í Hörpu

Hjörvar Hermannsson kynnir
Á Ráðstefnunni Framtíð netverslunar verður reynt að snerta á sem flestum þáttum sem tengjast netverslun. Ráðstefnan hefst kl. 9 í Hörpu, föstudaginn 19. maí.  Mynd/Vilhelm
Á Ráðstefnunni Framtíð netverslunar verður reynt að snerta á sem flestum þáttum sem tengjast netverslun. Ráðstefnan hefst kl. 9 í Hörpu, föstudaginn 19. maí.  Mynd/Vilhelm

Ráðstefnan Framtíð netverslunar verður haldin í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 19. maí.

Þar verða fluttir tíu fróðlegir og fjölbreyttir fyrirlestrar af fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem koma að netverslun úr ólíkum áttum en eiga þó sameiginlegt að vera framarlega á sínu sviði.

Skipuleggjandi ráðstefnunnar er Hjörvar Hermannsson en hann hefur starfað í kringum netverslunargeirann undanfarin ár og þekkir þennan markað því afar vel.

Tíu fyrirlesarar frá fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem koma að netverslun úr ólíkum áttum halda erindi á ráðstefnunni í Hörpu.

„Á þessari ráðstefnu reynum við að snerta á sem flestum þáttum sem tengjast netverslun. Það eru yfir þúsund fyrirtæki á Íslandi sem selja vörur sínar og þjónustu í gegnum vefinn og svo öll þjónustan og vöruframboðið tengt því. Þetta mengi er því talsvert stórt.”

Hjörvar Hermannsson er skipuleggjandi ráðstefnunnar. Hann hefur starfað í kringum netverslunargeirann í mörg ár og þekkir þennan markað afar vel.

Mikill vöxtur hefur átt sér stað

Hann segir sífellt fleiri fyrirtæki hérlendis leggja aukna áherslu á netverslun auk þess sem neytendur séu komnir með góða reynslu af henni og átta sig betur á þægindum hennar.

„Það er mjög margt í gangi og fyrirtæki eru almennt farin að hafa mun meiri trú á netverslun en áður. Neytendur eru líka farnir að sjá einfaldleikann í því að nýta sér þær lausnir. Fyrir ekki svo löngu síðan höfðu margir ekki trú á því að tryggingar eða bílar yrðu seldir í netverslun. Í dag er Tesla að reka öfluga netverslun og TM hlaut nýlega íslensku vefverðlaunin fyrir söluvef ársins. Það eru því breyttir tímar.“

Dagskráin inniheldur fróðlega og fjölbreytta fyrirlestra. Boðið er upp á kaffi og te allan daginn og hádegisverð.

Hjörvar skipulagði ráðstefnuna upphaflega rétt fyrir Covid og þá hafði hann hugsað sér að flytja inn erlenda fyrirlesara í bland við þá sem starfa hér á landi. „Í Covid faraldrinum átti ég mörg samtöl við fagfólk í geiranum hér heima og sá þá fljótlega að óþarfi væri að flytja inn þekkingu þegar við eigum nóg af henni hér á landi. Það er rosalega mikið af flottu fólki og fyrirtækjum sem starfa í þessum geira og við megum vera stolt af þeim.“

Mikill áhugi til staðar

Hann segir mikinn áhuga hafa ríkt hjá fyrirtækjum að taka þátt í ráðstefnunni og önnur fyrirtæki séu að senda sitt fólk á hana, ekki bara starfsfólk markaðs- og vefdeilda heldur séu margir almennt áhugasamir um að hlusta á stefnu og strauma á þessum markaði. „Það er augljóst að það eru mikil gæði til staðar og rosalega mikið af flottu fólki sem starfar við ýmislegt tengt netverslun hér á landi.

Ráðstefnugjald er 28.900 kr. og er hægt að kaupa miðar hér.

Hægt er að kynna sér fyrirlesara og smá fróðleik um hvern fyrirlestur hér

Innifalið í verðinu er kaffi og te yfir daginn ásamt hádegisverði í Hörpu. Boðið verður upp á sítrónu maríneraðan kjúkling með tómötum og mozzarella osti. Einnig verður boðið upp á vegan rétt sem er engifergljáðar oumph bollur með pastasalati, ristuðu grænmeti og kryddjurtasósu.

Kynnir ráðstefnunnar er Brynja Dan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×