Allir geta stutt við sprota og mikið fjármagn sótt nú þegar Rakel Sveinsdóttir skrifar 3. maí 2023 07:01 Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir er nýr framkvæmdastjóri KLAK og hún segir alla geta stutt við sprota. Til dæmis geti það skipt sköpum fyrir nýsköpunarverkefni sem fá stóra styrki erlendis frá, að geta sýnt að þeir séu með viðskiptavini á heimamarkaði. Í vikunni klárast Hringiða hraðall KLAK sem nú þegar hefur sýnt sig á síðustu árum að hafi skilað miklum árangri í fjármögnun sprota. Vísir/Vilhelm Á föstudaginn í þessari viku munu sjö sprotafyrirtæki kynna nýsköpunarverkefni sín fyrir fjárfestum sem lokaviðburð hraðalsins Hringiða sem KLAK stendur fyrir. Hringiða hefur það að markmiði að undirbúa græn nýsköpunarverkefni fyrir umsóknir um Evrópustyrki.
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri KLAK segir nýsköpun sjaldan hafa verið jafn áríðandi og nú þegar heimurinn glímir við aðkallandi verkefni. „Nýsköpun hefur lykilhlutverki að gegna við að mæta þeim áskorunum sem tengjast loftslagsbreytingum og það er því mikilvægt að styðja við sprota á þessu sviði og hraða framgangi þeirra eins og hægt er.“ Í tilefni Hringiðu fjallar Atvinnulífið um sprota í dag og á morgun. Mikið fjármagn safnast í kjölfar fyrstu hraðla Hraðallinn Hringiða er nú haldinn í þriðja sinn og segir Ásta að þótt lögð sé áhersla á sókn í erlenda styrktarsjóði séu fyrirtækin sem taki þátt einnig að leita að fjármagni frá fjárfestum. Árangurinn til þessa hefur verið alveg frábær. Sem dæmi má nefna hafa sprotafyrirtækin sem tóku þátt í Hringiðu á síðasta ári náð að safna 180 milljónum króna úr innlenda styrkjaumhverfinu, og enn meiru frá útlöndum.“ Sem dæmi má nefna fyrirtækið Sidewind sem fékk ásamt samstarfsaðila sínum 1,4 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu og Snerpa Power sem hlotið hefur 41 milljóna króna í innlenda styrki og var valið UT Sprotinn árið 2022. „Þriðja dæmið er fyrirtækið Green Bytes sem tók þátt í Hringiðu í fyrra en þær hafa þróað hugbúnað til að draga úr matarsóun á veitingastöðum. Green Bytes fékk í kjölfar hraðalsins 140 milljóna króna fjármögnun úr sjóði Crowberry Capital.“ Ásta segir það vel koma til greina að KLAK fari í samstarf við stórfyrirtæki sem hefðu áhuga á að kalla eftir því úr samfélaginu að fá sprota til samstarfs til að finna nýja lausn við einhverri áskorun. Sú aðferðarfræði nefnist Reverse Pitching erlendis og hefur þegar verið sannreynd hér. Þá stóðu stjórnvöld fyrir því að kalla eftir lausnum sem skilaði þeim árangri að fyrirtækið Leviosa fór í samvinnu við Landspítalann um innleiðingu á nýrri sjúkraskrárlausn.Vísir/Vilhelm Allir geta stutt við sprota Ásta segir alla geta stutt við bakið á sprotafyrirtækjum. Ekki aðeins sem fjárfestar eða opinberir aðilar með styrkjum. Það getur verið mjög mikilvægt fyrir sprotafyrirtæki að fá viðskipti snemma. Ekki aðeins til þess að styðja við þau rekstrarlega skiptir það líka oft sköpum að vera með viðskiptavini í heimalandinu þegar verið er að sækja um þessa stóru erlendu styrki eða að hasla sér völl erlendis.“ Ásta nefnir sem dæmi viðskiptavin sem fyrirtækið Laka Power fékk í samstarf snemma og hefur fengið háan styrk frá Evrópusambandinu. „Landsnet studdi við starfsemi Laka Power snemma í ferlinu með því að leyfa þeim að hengja búnaðinn sinn á háspennulínu meðan enn var verið að þróa búnaðinn og gera prófanir.“ Þá segir hún rótgróin fyrirtæki líka geta gert ýmislegt til að stuðla að nýsköpun innan sinna veggja. „Sum fyrirtæki gera samninga við starfsmanninn sem kom með hugmyndina þannig að hann eigi hlut í lausninni þegar hún verður að veruleika. Þetta getur verið mjög gott hvatakerfi og hentugt fyrir bæði vinnuveitandann og starfsmanninn.“ Annað dæmi sem Ásta nefnir kallast á ensku,,Reverse Pitching“. „Fyrirtækin kalla þá eftir samvinnu við frumkvöðla til að leysa úr einhverjum áskorunum sem þau standa frammi fyrir. Þetta var til dæmis gert á Íslandi árið 2020 þegar stjórnvöld stóðu fyrir Stafrænu heilbrigðismóti þar sem aðilar í heilbrigðisþjónustu gátu sett fram raunverulegar áskoranir og kallað eftir lausnum frá fyrirtækjum og frumkvöðlum. Fyrirtækið Leviosa fór þá í samvinnu við Landspítalann um innleiðingu á nýrri sjúkraskrárlausn.“ Sjálf segist Ásta alveg til í að KLAK skoði verkefni sem þetta. „Já, KLAK gæti vel staðið fyrir Reverse Pitching verkefni fyrir stórfyrirtæki sem hafa áhuga á að virkja hugkvæmni frumkvöðla og sprotafyrirtækja. Við stöndum fyrir alls kyns hröðlum, verkefnum og viðburðum með það að meginmarkmiði að stuðla að framgangi sprotafyrirtækja með öllum tiltækum ráðum. Þetta er ótrúlega skemmtileg umhverfi að starfa í.“
Nýsköpun Tækni Umhverfismál Samfélagsleg ábyrgð Vinnustaðurinn Vinnumarkaður Tengdar fréttir Fengu meðal annars styrk upp á 2,1 milljón evra „Lengi framan af voru starfsmennirnir einn til tveir eða allt þar til árið 2019, þá kom Brunnur fjárfestingasjóður inn með fjármögnun og teymið varð þriggja til fjögurra manna. En frá upphafi höfum við nýtt okkur styrkjarumhverfið, allt frá styrkjum fyrir markaðsmálin yfir í styrk í gegnum einkaleyfisferlið,“ segir Ósvaldur Knudsen framkvæmdastjóri Laki Power. 23. mars 2023 07:01 Notuðu hárblásara til að kynna hugmyndina á nokkrum fundum með ráðherrum „Þetta er reyndar þrjátíu ára gömul hugmynd,“ segir Óskar Svavarsson annar stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Sidewind sem stefnir að framleiðslu vindtúrbínu sem komið er fyrir í opnum gámum. 22. mars 2023 07:01 Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Af hinu góða að reka hér marga öfluga vísisjóði „Við gerðumst bakhjarlar að VC Challenge vegna þess að þetta námskeið stendur fyrir margt sem við viljum stuðla að,“ segir Sæmundur K. Finnbogason sjóðstjóri Kríu um aðkomu sjóðsins að samnorræna verkefninu VC Challenge, en markmið námskeiðsins er að búa til enn öflugra fjárfestingaumhverfi sprotafyrirtækja með því að þjálfa og undirbúa næstu kynslóð sjóðstjóra vísisjóða. 30. mars 2023 07:01 Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Námskeið til að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra „Frá aldamótum hefur mikil þekking orðið til hjá íslensku vísissjóðunum en það má segja að markmið VC Challenge námskeiðsins sé að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra. Með meiri þekkingu og reynslu verða þessir vísisjóðir álitlegri fjárfestingakostur fyrir aðra fjárfesta,“ segir Freyr Friðfinnsson alþjóðafulltrúi KLAK um samstarfsverkefni sem KLAK er nú aðili að ásamt mörgum aðilum í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Norðurlöndunum. 29. mars 2023 07:01 „Það sem kemur mér endalaust á óvart aftur og aftur eru hæfileikar fólks.“ „Þegar talað er um nýsköpun hugsar fólk oftast til sprotafyrirtækja og þessara snillinga sem eru að gera svo frábæra hluti víða. Í stórum og rótgrónum fyrirtækjum fer líka mikil nýsköpun fram og það sem við erum að gera er að virkja þennan kraft,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania. 3. október 2022 07:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Viðskipti innlent Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Viðskipti innlent Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Viðskipti innlent Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Viðskipti innlent Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík „Einn mjög fárra karla á mínum aldri sem er ekki í golfi!“ Að vera bestur í teyminu er allt annað en að vera góður stjórnandi Kynslóðaskipti: Arftakaáætlunin virkjuð, vinnustaðaskóli og ný tækifæri fyrir starfsfólk 55-74 ára fjölgar hlutfallslega mest á vinnumarkaði „Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“ Algengt að starfsfólk læri ekki af mistökum Hjón í nýsköpun: „Það er reyndar hún sem er Þjóðverjinn en ég Íslendingurinn“ Vandræðalega kvöldsvæfur framkvæmdastjóri Öfund í vinnu og afbrýðisamir vinnufélagar Gæðasamtöl við dótturina, mömmu eða vinkonu á leið í vinnu Sex einkenni um að þú sért í miðaldrakrísu í vinnunni Plankavinir, kaka fyrir vinnufélaga, leika sér með börnum og hafa gaman Spennuþrungin sigling Mottumarssokkana til Íslands dæmi um hvað margt getur komið upp „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum Deilur og leiðindi við vinnufélaga og góð ráð Fögnum fjölbreytileikanum: Pólverjar flestir, síðan Litháar, síðan Íslendingar Eiga ekki bara að vera Íslendingar í betur launuðu störfunum „Menn trúðu því um tíma að hægt væri að semja við skrattann“ Nú er hægt að kúra og slappa af á morgnana „Karlarnir segja konur of reynslulausar“ Eðlilegt að starfsmenn og stjórnendur skipti um vinnu reglulega „Stjórnendur átta sig ekki alltaf á því að starfslýsing er ekki nóg“ „Þau vildu ræða við kempurnar þrjár: Katrínu Jak, Elízu Reid og mig!“ „Það er fátt skemmtilegra en að taka einn Tene dag“ Leiðtogaþjálfun: „Þetta er eins og taka til í geymslunni“ Sjá meira
Fengu meðal annars styrk upp á 2,1 milljón evra „Lengi framan af voru starfsmennirnir einn til tveir eða allt þar til árið 2019, þá kom Brunnur fjárfestingasjóður inn með fjármögnun og teymið varð þriggja til fjögurra manna. En frá upphafi höfum við nýtt okkur styrkjarumhverfið, allt frá styrkjum fyrir markaðsmálin yfir í styrk í gegnum einkaleyfisferlið,“ segir Ósvaldur Knudsen framkvæmdastjóri Laki Power. 23. mars 2023 07:01
Notuðu hárblásara til að kynna hugmyndina á nokkrum fundum með ráðherrum „Þetta er reyndar þrjátíu ára gömul hugmynd,“ segir Óskar Svavarsson annar stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Sidewind sem stefnir að framleiðslu vindtúrbínu sem komið er fyrir í opnum gámum. 22. mars 2023 07:01
Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Af hinu góða að reka hér marga öfluga vísisjóði „Við gerðumst bakhjarlar að VC Challenge vegna þess að þetta námskeið stendur fyrir margt sem við viljum stuðla að,“ segir Sæmundur K. Finnbogason sjóðstjóri Kríu um aðkomu sjóðsins að samnorræna verkefninu VC Challenge, en markmið námskeiðsins er að búa til enn öflugra fjárfestingaumhverfi sprotafyrirtækja með því að þjálfa og undirbúa næstu kynslóð sjóðstjóra vísisjóða. 30. mars 2023 07:01
Fjárfestingar í sprotafyrirtækjum: Námskeið til að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra „Frá aldamótum hefur mikil þekking orðið til hjá íslensku vísissjóðunum en það má segja að markmið VC Challenge námskeiðsins sé að þjálfa næstu kynslóð sjóðsstjóra. Með meiri þekkingu og reynslu verða þessir vísisjóðir álitlegri fjárfestingakostur fyrir aðra fjárfesta,“ segir Freyr Friðfinnsson alþjóðafulltrúi KLAK um samstarfsverkefni sem KLAK er nú aðili að ásamt mörgum aðilum í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Norðurlöndunum. 29. mars 2023 07:01
„Það sem kemur mér endalaust á óvart aftur og aftur eru hæfileikar fólks.“ „Þegar talað er um nýsköpun hugsar fólk oftast til sprotafyrirtækja og þessara snillinga sem eru að gera svo frábæra hluti víða. Í stórum og rótgrónum fyrirtækjum fer líka mikil nýsköpun fram og það sem við erum að gera er að virkja þennan kraft,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania. 3. október 2022 07:02