Innlent

Ekki ljóst hvort húsið hafi verið mannlaust

Oddur Ævar Gunnarsson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Eins og sjá má er um mikinn eld að ræða. Í myndbandi að neðan má sjá þakplötur hrynja.
Eins og sjá má er um mikinn eld að ræða. Í myndbandi að neðan má sjá þakplötur hrynja. Vísir/Vilhelm

Gunnlaugur Jónsson aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir slökkviliði ekki kunnugt um það hvort einhver hafi verið í húsinu sem brann í stórbruna við Hafnarfjarðarhöfn í kvöld. Slökkvistörfum mun ekki ljúka fyrr en í nótt og eru íbúar beðnir um að loka gluggum ef til þarf vegna reyksins.

„Við sáum það nú strax þegar við lögðum af stað frá slökkvistöðinni í Hafnarfirði að það var stórt svart ský yfir bænum,“ segir Gunnlaugur í samtali við fréttastofu.

Þegar slökkvilið hafi mætt á vettvang hafi húsið þegar verið alelda. 

„Það var mestur eldur fyrir miðju húsi og þetta gerðist mjög hratt og húsið varð alelda á nokkrum mínútum.“

Húsið sé að mestu brunnið og verði rifið um leið og slökkvistörfum ljúki. „Það er lítið sem hægt er að bjarga hér.“

Húsið var að hruni komið vegna eldsins og hrundu þakplötur af því, eins og sjá má á myndbandi sem ljósmyndari Vísis tók. 

Liggur fyrir að húsið hafi verið mannlaust?

„Við höfum engar heimildir um það. Það var einhver takmörkuð starfsemi í því. Við vitum ekki meira.“

Aðgerðir langt fram á nótt

Hann segir ekkert vitað um eldsupptök að svo stöddu. Aðgerðirnar muni standa yfir fram á nótt.

„Það eru glæður í húsinu sem enn á eftir að slökkva í en mesti eldurinn hefur verið slökktur. Þetta verður eitthvað fram eftir nóttu.“

Hann segir útilokað að slökkviliðsmenn verði sendir inn í húsið. „Þetta er bara að hruni komið og hangir á lyginni og járnplötunum, þannig að það verður ekki gert.“

Slökkviliðið hætti engum manni inn í hús. Vísir/Vilhelm

Létu færa áhorfendur vegna springandi gaskúta

Töluverður fjöldi fólks var samankominn við húsið til þess að fylgjast með slökkvistörfum. Gunnlaugur segir að slökkvilið hafi beðið lögreglu um að ýta fólki fjær svæðinu.

„Við létum færa fólkið strax í byrjun. Það voru ansi margir áhorfendur komnir nálægt en við fengum lögreglu til þess að ýta þem lengra frá, vegna þess að við vissum að það væru gaskútar þarna inni og nokkrir voru búnir að springa nú þegar.“

Lögregla fékk íbúa til þess að færa sig fjær húsinu vegna springandi gaskúta.Vísir/Vilhelm

Gunnlaugur segir að neðri hluti byggingarinnar geti hrunið hvenær sem er. Stálgrind hússins krullist saman eins og spagettí þegar kalt vatn mætir heita stálinu.

„En eldurinn var sem betur fer bundinn við þetta eina hús og gott bil í það næsta, sem er íshúsið og ekkert við húsið hinumegin.

Fólk loki gluggum vegna reyksins

Mikinn reyk lagði upp frá húsinu. Reykurinn sást víða og fékk fréttastofa fjölmargar ábendingar þess efnis.

Spurður hvort íbúar í Hafnarfirði eigi að loka gluggum í nótt vegna mögulegrar mengunar, segir Guðlaugur:

„Já ef það stendur reykur yfir húsinu, er um að gera að loka gluggum og hækka aðeins í ofninum til þess að halda reyknum úti. Það er ekki gott að anda of miklu af þessum reyk að sér.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×