Viðskipti erlent

For­stjóri Thera­nos frestar fangelsis­vist með á­frýjun

Kjartan Kjartansson skrifar
Elizabeth Holmes er 38 ára gömu tveggja barna móðir. Hún eignaðist bæði börnin eftir að var ljóst að hún ætti yfir sér sakamálarannsókn og mögulega áralöng fangelsisvist.
Elizabeth Holmes er 38 ára gömu tveggja barna móðir. Hún eignaðist bæði börnin eftir að var ljóst að hún ætti yfir sér sakamálarannsókn og mögulega áralöng fangelsisvist. AP/Jeff Chiu

Elizabeth Holmes, forstjóri fallna tæknifyrirtækisins Theranos, hefur ekki afplánun á meira en ellefu ára fangelsisdómi í dag þar sem hún áfrýjaði niðurstöðu alríkisdómstóls. Samverkamaður Holmes seinkaði afplánun sinn um mánuð með sams konar áfrýjun í síðasta mánuði.

Alríkisdómari í máli Holmes hafnaði fyrir tveimur vikum kröfu hennar um að hún fengi að ganga laus gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar rúmlega ellefu ára fangelsisdómi fyrir fjársvik sem hún hlaut í janúar í fyrra. Holmes átti samkvæmt því að hefja afplánun í dag.

Lögmenn Holmes tilkynntu dómaranum seint í gær að hún gæfi sig ekki fram til afplánunar í dag þar sem hún hefði áfrýjað synjun hans um lausn gegn tryggingu. AP-fréttastofan segir að áfrýjunin fresti sjálfkrafa upphafi afplánunarinnar vegna þess að Holmes hefur gengið laus gegn tryggingu frá því að hún var sakfelld fyrir rúmu ári.

Ramesh „Sunny“ Balwani, fyrrverandi forseti og framkvæmdastjóri Theranos og fyrrverandi ástmaður Holmes, áfrýjaði á sambærilegan hátt þegar dómari í hans málið neitaði honum um lausn gegn tryggingu á meðan hann áfrýjaði hátt í þrettán ára fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir nánast sömu brot og Holmes. Réttað var yfir fyrrverandi parinu hvoru í sínu lagi eftir að Holmes sakaði Balwani um að hafa beitt sig ofbeldi á meðan þau voru saman.

Áfrýjun Balwani var hafnað. Hann hóf afplánun sína í alríkisfangelsi í Kaliforníu fyrir viku. Hún átti upphaflega að hefjast 16. mars.

Engin innistæða fyrir digurbarkalegum fullyrðingum

Stjarna Holmes reis hátt á sínum tíma og var henni gjarnan líkt við Steve Jobs, stofnanda tæknirisana Apple. Að hennar sögn bjó Theranos yfir tækni sem gerbylti blóðprufum. Með henni þyrfti aðeins einn einasta blóðdropa til þess að greina alls kyns sjúkdóma og kvilla. Engin innistæða reyndist fyrir þeim fullyrðingum.

Theranos fór á hausinn með tilþrifum í kjölfar uppljóstrana um að ekki væri allt með felldu innan veggja fyrirtækisins. Á meðal þess sem kom í ljós var að Theranos notaði blóðgreiningartæki keppinauta sinna til þess að greina blóðprufur á laun.


Tengdar fréttir

Stofnandi Thera­nos kemst ekki hjá fangelsis­vist

Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik.

Holmes dæmd í ellefu ára fangelsi

Elizabeth Holmes, stofnandi Theranos, hefur verið dæmd í ellefu ára fangelsi fyrir að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Holmes var sakfelld í upphafi árs en refsingin ekki ákveðin fyrr en nú.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×