Íslenski boltinn

Besta spá kvenna 2023: Atlaga að titlinum

Stjarnan er aftur komin í fremstu röð eftir stórgott tímabil í fyrra. Ein dáðasta dóttir félagsins er snúin aftur í Garðabæinn og hún ætlar að koma liðinu á toppinn. Gengið á undirbúningstímabilinu lofar góðu.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, lyftir bikarnum eftir sigur Stjörnunnar á Val í Meistarakeppni KSÍ. vísir/hulda margrét

Stjarnan er aftur komin í fremstu röð eftir stórgott tímabil í fyrra. Ein dáðasta dóttir félagsins er snúin aftur í Garðabæinn og hún ætlar að koma liðinu á toppinn. Gengið á undirbúningstímabilinu lofar góðu.

Venju samkvæmt spáir íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst í dag, þann 25. apríl, með þremur leikjum. Fyrstu umferðinni lýkur svo 26. apríl með tveimur leikjum.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að Stjarnan endi í 1. sæti Bestu deildar kvenna í sumar og verði Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sjö ár.

Stjarnan

  • Ár í deildinni: 32 tímabil í röð í efstu deild (1992-)
  • Besti árangur: Fjórum sinnum Íslandsmeistari (síðast 2016)
  • Best í bikar: Þrisvar sinnum bikarmeistari (síðast 2015)
  • Sæti í fyrra: 2.
  • Þjálfari: Kristján Guðmundsson (5. tímabil)
  • Markahæst í fyrra: Jasmín Erla Ingadóttir, 11 mörk

Síðasta tímabil var frábært í Garðabænum, það besta frá Íslandsmeistaraárinu 2016. Stjörnukonur voru í baráttu við Blika um 2. sætið, unnu hana á endanum og tryggðu sér Evrópusæti.

Stjarnan hefur bætt sig á hverju tímabili eftir að Kristján Guðmundsson tók við liðinu fyrir tímabilið 2019. Og ef Garðbæingar bæta stöðu sína í Bestu deildinni frá síðasta tímabili þýðir það að þeir standa uppi sem Íslandsmeistarar í haust. Það hlýtur allavega að vera stefnan í Garðabænum.

Hjónin Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin McLeod með meistarabikarinn. Sú síðarnefnda tryggði Stjörnukonum hann með því að verja síðustu spyrnu Valskvenna í vítakeppninni í leiknum fyrir viku.vísir/hulda margrét

Stjarnan missti vissulega Katrínu Ásbjörnsdóttur sem skoraði níu mörk á síðasta tímabili en liðið virðist samt vera sterkara en í fyrra. Munar þar mestu um heimkomu Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur. Hún er komin aftur í Bestu deildina eftir tíu farsæl ár í atvinnumennsku. 

Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikil búbót Gunnhildur er fyrir Stjörnuna enda hundrað landsleikja kona og einn öflugasti leikmaður Íslands síðustu fimmtán árin eða svo. Mikil kraftur og meðbyr ætti að fylgja hinni mjög svo drífandi Gunnhildi og vonandi eykur hún áhuga Garðbæinga á liðinu sínu.

Eftir nokkur uppbyggingarár er Stjarnan aftur komin í fremstu röð og Garðbæingar mæta stórhuga og sterkir til leiks í sumar. Gengið á undirbúningstímabilinu lofar allavega góðu en Stjarnan vann bæði Lengjubikarinn og Meistarakeppnina, þótt þær hafi vissulega þurft vítaspyrnukeppnir til. 

Verður 2023 ár Stjörnukvenna? Ekki veðja gegn því.

Liðið og lykilmenn

Stjarnan teflir fram svipuðu liði og vann til silfurverðlauna á síðasta tímabili. Garðbæingar munu sakna Katrínar og markanna níu sem hún skoraði í fyrra og þá var Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir í nokkuð stóru hlutverki. 

Snædís María Jörundsdóttir, ein af stjörnum U-19 ára landsliðsins, er komin aftur til Stjörnunnar, reynslunni ríkari eftir dvöl hjá Keflavík og hún verður væntanlega í byrjunarliðinu. Þá er hin nýsjálenska Betsy Hassett komin aftur í Garðabæinn og hún eykur breiddina verulega hjá Stjörnunni.

grafík/bjarki

Miðjan var sterk hjá Stjörnunni og ekki veiktist hún með tilkomu Gunnhildar Yrsu og Andreu Mistar Pálsdóttur. Þær tvær og Heiða Ragney Viðarsdóttir mynda gríðarlega öfluga Stjörnumiðju sem ætti að standa öllum öðrum miðjum deildarinnar framar þegar kemur að krafti og hlaupagetu. Þeim til halds og trausts er svo Grindvíkingurinn Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir.

Komnar:

  • Betsy Has­sett frá Well­ingt­on Phoen­ix
  • Eyrún Vala Harðardótt­ir frá Augna­bliki
  • Erin Mc­Leod frá Or­lando Pri­de
  • Gunn­hild­ur Yrsa Jóns­dótt­ir frá Or­lando Pri­de
  • Andrea Mist Páls­dótt­ir frá Þór/​KA

Farnar:

  • Birta Guðlaugs­dótt­ir í Val
  • Chanté Sandi­ford í Grinda­vík
  • Hildigunn­ur Ýr Bene­dikts­dótt­ir í FH
  • Katrín Ásbjörns­dótt­ir í Breiðablik

Í framlínunni mun mikið mæða á Jasmín Erlu Ingadóttur, markahæsta leikmanni Bestu deildarinnar á síðasta tímabili. Annar leikmaður sem blómstraði á síðasta tímabili, Gyða Kristín Gunnarsdóttir, þarf að taka annað skref fram á við svo Stjarnan verði í titilbaráttu. Nýsjálendingurinn Betsy Hassett verður svo líka væntanlega í stóru hlutverki.

Vörn Stjörnunnar er svipuð og á síðasta tímabili en stærsta ákvörðun Kristjáns snýr að markinu. Treystir hann á kanadíska Ólympíumeistarann Erin McLeod sem fylgdi Gunnhildi Yrsu í Garðabæinn eða Auði Sveinbjörnsdóttur Scheving sem hefur verið viðloðandi íslenska landsliðið undanfarin misseri. Erin byrjaði úrslitaleik Lengjubikarsins og Meistaraleikinn og verður væntanlega í markinu í byrjun tímabils.

Lykilmenn Stjörnunnar

  • Anna María Baldursdóttir, 28 ára varnarmaður
  • Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, 34 ára miðjumaður
  • Jasmín Erla Ingadóttir, 24 ára sóknarmaður

Fylgist með

Anna María Baldursdóttir verður alltaf fyrsti kostur í miðja vörn Stjörnunnar. Og til að byrja með verður Eyrún Embla Hjartardóttir væntanlega við hlið hennar. Eyrún spilaði talsvert í fyrra, ellefu leiki af átján, og verður í enn stærra hlutverki í sumar. Gríðarlega efnilegur varnarmaður.

Jasmín Erla Ingadóttir, markadrottning Bestu deildar kvenna í fyrra.vísir/hulda margrét

Í besta/versta falli

Í versta falli stendur Stjarnan ekki undir væntingum og ef allt fer á allra, allra versta veg gæti liðið farið niður í 3. sæti. En í besta falli verða Stjörnukonur Íslandsmeistarar í fimmta sinn í sögu félagsins og það er allt til alls í Garðabænum til að fara alla leið. 


Tengdar fréttir

Besta spáin 2023: Of mikil blóðtaka

Valur stefnir á að verða Íslandsmeistari í sumar og verða þar með fyrsta liðið í fimmtán ár til að vinna titilinn þrisvar sinnum í röð. Stór skörð hafa verið höggvin í Valsliðið frá síðasta tímabili og það hefur misst mikla reynslubolta.

Besta spáin 2023: Ný og beitt vopn duga ekki til

Eftir versta tímabil sitt í áratug mætir Breiðablik með glorhungrað og öflugt lið til leiks í sumar sem ætlar sér að komast aftur á toppinn í íslenskum fótbolta.

Besta spáin 2023: Getur brugðið til beggja vona á Akur­eyri

Breytingar eru ekki alltaf af hinu góða en ef marka má gott gengi Þórs/KA á undirbúningstímabilinu þá hafa breytingarnar á Akureyri aðeins verið af hinu góða. Vísir gengur svo langt að spá þeim í efri helming Bestu deildar kvenna í sumar, eitthvað sem hefur ekki gerst síðan 2019.

Besta spáin 2023: Miklar breytingar í Keflavík

Keflavík hefur endað í 8.sæti deildarinnar undanfarin tvö ár og verið fjórum stigum frá falli en vill eflaust ná betri árangri í ár. Til þess þurfa nýjir leikmenn að standa sig frábærlega.

Besta spáin 2023: Skagfirsk sveifla upp og niður

Tindastólskonur sáu til þess í fyrra að fyrsta tímabil liðsins í efstu deild, sumarið 2021, yrði ekki eitthvað einstakt tilvik. Þær eru mættar aftur í deild þeirra bestu en líkt og síðast má búast við þungum róðri í Skagafirði við að halda liðinu uppi.

Besta spáin 2023: Stutt stopp hjá FH

FH er nýliði í deildinni eftir að hafa farið ósigrað í gegnum 1.deildina. Munurinn á deildunum er hins vegar mikill og því þarf allt að ganga upp hjá Hafnarfjarðarliðinu svo ekki fari illa.






×