Viðskipti erlent

Slær þúsunda milljarða króna lán frá seðla­banka

Kjartan Kjartansson skrifar
Hlutabréfaverð í Credit Suisse náði lægstu lægðum í gær.
Hlutabréfaverð í Credit Suisse náði lægstu lægðum í gær. AP/Seth Wenig

Svissneski bankinn Credit Suisse ætlar að fá lánaða allt að fimmtíu milljarða svissneskra franka, jafnvirði hátt á áttunda þúsund milljarða íslenskra króna, frá seðlabankanum þar í landi til þess að styrkja stöðu sína. Hlutabréf í bankanum féllu um fjórðung eftir að stærsti hluthafi hans neitaði að setja meira fé í hann í gær.

Mikill óróleiki hefur gripið um sig á heimsvísu eftir fall tveggja millistórra bandarískra banka í kringum síðustu helgi, annars vegar Silicon Valley Bank og hins vegar Signature Bank. Credit Suisse, annar stærsti banki Sviss, átti í vandræðum fyrir en gærdagurinn var sérstaklega svartur.

Þjóðarbanki Sáda, stærsti einstaki hluthafinn í Credit Suisse, lýsti því yfir opinberlega að hann ætlaði sér ekki að leggja meira fé í bankann. Gengi bréfa í Credit Suisse hrundu í kjölfarið og dróg aðra evrópska banka niður með sér í leiðinni. Viðskipti með bréfin voru stöðvuð sjálfkrafa í svissnesku kauphöllinni.

Nú segja forráðamenn bankans að þeir ætli sér að nýta sér heimild til þess að fá allt að fimmtíu milljarða franka lánaða frá svissneska seðlabankanum.

„Þetta viðbótar lausafé styrkti kjarnastarfsemi Credit Suisse og viðskiptavini á meðan bankinn stígur nauðsynleg skref til þess að búa til einfaldari og hnitmiðaðri banka sem er sniðinn að þörfum viðskiptavina,“ sagði í yfirlýsingu frá svissneska bankanum.

Seðlabanki Sviss segir að féð sé til staðar ef Credit Suisse þarf á því að halda. Bankinn sé tilbúinn að stíga inn í og leggja honum enn frekara lið ef þörf er á, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.


Tengdar fréttir

Áfram lækkanir í kauphöllum

Hlutabréf í bönkum og fjármálastofnunum hafa lækkuðu áfram við opnun markaða á suðurhveli jarðar í nótt.

Credit Suis­se drag­bítur á evrópskum bönkum

Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×