Handbolti

Aron: Ákvörðunin um Guðmund kom flatt upp á leikmenn landsliðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson hvetur liðsfélaga sína í landsliðinu áfram á HM í handbolta.
Aron Pálmarsson hvetur liðsfélaga sína í landsliðinu áfram á HM í handbolta. Vísir/Vilhelm

Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, segir leikmenn liðsins ekki hlaupa undan ábyrgð á því hvernig fór á heimsmeistaramótinu í janúar.

Íslenska handboltalandsliðið kom til Tékklands í gærkvöldi þar sem liðið mætir heimamönnum í undankeppni EM á morgun.

Þetta verður fyrsti leikur liðsins eftir heimsmeistaramótið og fyrsti leikur liðsins eftir að Guðmundur Guðmundsson hætti óvænt að þjálfa liðið þrátt fyrir að vera með samning til ársins 2024.

„Andinn í hópnum er bara fínn en þetta eru búnar að vera pínu skrýtnar tvær vikur núna undanfarið. Vonbrigði á síðasta móti en við leikmennirnir erum staðráðnir að gera vel,“ sagði Aron Pálmarsson í samtali við RÚV.

Aron var þarna að vísa í brotthvarf þjálfarans. Gunnar Magnússon og Ágúst Jóhannsson stýra liðinu í leikjunum tveimur á móti Tékkum.

„Tímasetningin. Það var stutt í næsta verkefni og allt það. Við leikmennirnir fengum bara tilkynningu um þetta rétt áður en þetta kom út. Auðvitað kemur þetta flatt upp á mann. Þjálfarinn átti rúmt ár eftir af samningi og við vorum ekki alveg að búast við þessu,“ sagði Aron.

Það má sjá allt viðtalið við Aron hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×