Neytendur

Eiga rétt á bótum eftir að sprengju­hótun tafði för

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Flugvél Wizz Air á Keflavíkurflugvelli.
Flugvél Wizz Air á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Frikki

Fjórir farþegar ungverska flugfélagsins Wizz Air eiga rétt á bótum frá félaginu vegna tafa sem urðu á för þeirra sem rekja má til sprengjuhótunar á flugvellinum í Kraká í Póllandi.

Þetta er niðurstaða Samgöngustofu í máli farþeganna fjögurra. Áttu þeir far með Wizz Air frá Keflavík til Kraká þann 24. júlí á síðasta ári.

Því flugi var hins vegar aflýst þar sem fyrra flugi flugvélarinnar sem átti að koma til Ísland var aflýst. Var það vegna sprengjuhótunar sem beindist að annarri flugvél sem var á leið til flugvallarins í Kraká frá Ísrael.

Varð það til þess að flugvellinum í Kraká var lokað og því komst umrædd flugvél komst ekki til Íslands. Því var fluginu aflýst.

Sprengjuhótunin falli undir óviðráðanlegar aðstæður

Umræddir farþegar fengu flug á áfangastað þremur dögum síðar.

Þetta sættu þeir sig ekki við og freistuðu þeir því að sækja staðlaðar bætur til flugfélagsins vegna tafanna, 400 evrur eða um 60 þúsund krónur á mann.

Flugfélagið vísaði hins vegar til að ástæða aflýsingarinnar, það er sprengjuhótunin, væri vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Því ættu farþegarnir ekki rétt á bótum.

Kvörtuðu farþegarnir til Samgöngustofu vegna málsins og fóru fram á bætur. Í úrskurði Samgöngustofu kemur fram að tekið sé undir að upprunaleg ástæða aflýsingar flugsins hafi verið vegna óviðráðanlega aðstæðna.

Eðlileg flugumferð eftir að flugvöllurinn var opnaður á ný

Hins vegar leit Samgöngustofa til þess að farþegunum hafi ekki verið úthlutað annað flug fyrr en þremur dögum síðar.

Í ljósi þess að flugumferð hafi verið með eðlilegum hætti dagana eftir sprengjuhótunina hafi flugfélagið ekki sýnt fram á að allar nauðsynlegar ráðstafanir hafi verið gerðar til að koma í veg fyrir þau óþægindi sem farþegarnir urðu fyrir.

Hver og einn ætti því rétt á bótum sem miðast við fyrrgreinda upphæð.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×