Viðskipti innlent

Arion hækkar sömu­leiðis vextina

Atli Ísleifsson skrifar
Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 8,34 prósent.
Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 8,34 prósent. Vísir/Vilhelm

Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar.

Fyrr í dag tilkynnti Íslandsbanki um hækkun sinna vaxta.

Fram kemur í tilkynningu á vef Arion banka að breytilegir vextir þegar veittra lána hækki þrjátíu dögum eftir tilkynningu nema yfirdráttarlán og innlán sem taki breytingum samdægurs. Öll ný útlán munu bera nýju vextina.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

Óverðtryggð íbúðalán

  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,50 prósentustig og verða 8,34%
  • Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir eru óbreyttir og eru áfram 8,50%

Kjörvextir

  • Almennir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,50 prósentustig.

Yfirdráttur og greiðsludreifing kreditkorta

  • Yfirdráttarvextir og vextir greiðsludreifinga hækka um 0,50 prósentustig

Bílalán

  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,50 prósentustig.

Innlán

  • Breytilegir óverðtryggðir vextir sparnaðarreikninga hækka um allt að 0,70 prósentustig. Vextir veltureikninga hækka um 0,10 prósentustig. Vextir á Íbúðasparnaði hækka um 0,5 prósentustig og verða 7%.

Í tilkynningu á vef Arion segir að Vaxtabreytingar útlána taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, meðal annars útlánaáhættu.

„Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar.“


Tengdar fréttir

Hækkar vexti vegna stýri­vaxta­hækkana Seðla­bankans

Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×