Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að vextir bankans taki breytingum 20. febrúar, eða á mánudag, og vextir Ergo breytist 24. febrúar, eða næstkomandi föstudag.
Vakin er athygli á því að í skilmálum óverðtryggða húsnæðislána með breytilegum vöxtum, sem veitt voru á tilgreindu tímabili á árunum 2012 til 2021, eru ákvæði sem heimila viðskiptavinum að sækja um vaxtagreiðsluþak.
Vaxtabreytingarnar eru eftirfarandi:
- Vextir á óverðtryggðum innlánsreikningum hækka um 0,5 prósentustig.
- Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hækka um 0,5 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,5 prósentustig.
- Breytilegir óverðtryggðir kjörvextir Ergo og vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,5 prósentustig.
- Yfirdráttarvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,5 prósentustig.
Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að breytingar á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taki gildi í samræmi við skilmála þeirra og tilkynningar þar að lútandi. Þá muni breytingar á óverðtryggðum breytilegum vöxtum húsnæðislána taka gildi 1. mars næstkomandi.