Handbolti

Sigvaldi og Janus öflugir í stórsigri Kolstad

Smári Jökull Jónsson skrifar
Sigvaldi skoraði sex mörk í kvöld.
Sigvaldi skoraði sex mörk í kvöld. Kolstad

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Janus Daði Smárason og félagar þeirra í Kolstad unnu stórsigur á Sandnes í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Kolstad hafði unnið sigur í öllum deildarleikjum sínum í vetur og voru með góða forystu á toppi deildarinnar á meðan Sandnes hafði aðeins unnið tvo sigra og voru í fallsæti.

Það var því búist við öruggum sigri heimamanna og sú varð raunin. Kolstad var komið í 9-1 eftir rúmlega tíu mínútna leik og náði mest þrettán marka forskoti í fyrri hálfleik. Staðan 23-10 í hálfleik og úrslitin ráðin.

Gestirnir héldu betur í við heimamenn eftir hlé sem mögulega slökuðu aðeins á klónni. Munurinn fór þó aldrei niður fyrir tíu mörkin. Lokatölur 35-21 og Kolstad því enn með fullt hús stiga í norsku úrvalsdeildinni.

Báðir Íslendingarnir hjá Kolstad áttu flottan leik í kvöld. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði níu mörk úr tíu skotum og voru þrjú þeirra af vítalínunni. Janus Daði skoraði þrjú mörk og gaf sjö stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×