Viðskipti innlent

Selur helmings­hlut í Ís­­lenska vetnis­­fé­laginu til fransks fyrir­tækis

Atli Ísleifsson skrifar
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar, Guðmundur Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins, Tryggvi Þór Herbertsson, framkvæmdastjóri vetnisþróunarviðskipta hjá Qair Group og Guðlaugur Þór Þórðarsson, ráðherra umhverfis- orku- og loftslagsmála.
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar, Guðmundur Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins, Tryggvi Þór Herbertsson, framkvæmdastjóri vetnisþróunarviðskipta hjá Qair Group og Guðlaugur Þór Þórðarsson, ráðherra umhverfis- orku- og loftslagsmála. Aðsend

Orkan hefur selt helmingshlut í Íslenska vetnisfélaginu til franska fyrirtækisins Qair.

 Í tilkynningu segir að saman ætli fyrirtækin að taka þátt í uppbyggingu á vetnisstöðvum hringinn í kringum landið en Íslenska vetnisfélagið er dótturfyrirtæki Orkunnar og rekur í dag tvær vetnisstöðvar, á Vesturlandsvegi og í Fitjum, Reykjanesbæ. 

Ennfremur segir að samhliða viðskiptunum sé búið að tryggja landssvæði á Grundartanga þar sem Íslenska vetnisfélagið muni byggja vetnisframleiðslu í þeim tilgangi að þjónusta vetnisinnviðum með sem bestum hætti.

„Orkan er eina eldsneytisfyrirtækið sem býður viðskiptavinum vetni. Á næstu árum verða fjórar nýjar vetnisstöðvar teknar í notkun, þær fyrstu í Reykjavík og á Akureyri, næsta stöð þar á eftir er fyrirhuguð á Egilsstöðum og að lokum á Freysnesi. Óhætt er því að segja að orkuskiptin snúi ekki einungis að rafmagni en árið 2026 verður hægt að keyra kolefnishlutlaust hringveginn á vetnisbíl.

Fyrsta vetnisstöðin á Íslandi, sem var jafnframt sú fyrsta í heiminum til að selja vetni á neytendamarkaði, var tekin í notkun árið 2003 og eru um 30 vetnisbílar á suðvestur horninu í dag. Drægni vetnisbíla er umtalsvert meiri en rafmagnsbíla ásamt því sem engin rafhlaða er sem þyngir bílana. Vetnisbílar skila frá sér vatni og eru því kolefnishlutlausir og mikilvægur hlekkur í að draga úr kolefnisfótspori samganga í landinu. Mikill áhugi er fyrir þessum græna valmöguleika, sérstaklega þegar kemur að þungaflutningum þar sem ökutækin munu draga verulega úr kolefnisspori, og er því áætlað að vetnisbílum fjölgi hratt þegar innviðir styrkjast, bæði fólksbílar og flutningabílar,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Guðmundi Inga Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Íslenska vetnisfélagsins, að uppbyggingin muni geta valdið straumhvörfum í orkuskiptum í innanlandssamgöngum. Vetnisinnviðir séu forsenda þess að neytendur og fyrirtæki telji raunhæft að fjárfesta í vetnisbílum. 

„Fyrirtæki eru stöðugt að leita leiða til að draga úr kolefnisspori og með mest 380 kílómetra milli vetnisstöðva verður hægt að búa til forsendur fyrir því að loka hringveginum og færa vöruflutninga yfir á kolefnishlutlausa orkugjafa. ÍV er gríðarlega spennt fyrir orkuskiptunum sem framundan eru og að taka þátt í uppbyggingunni á grænum valkostum fyrir neytendur,” segir Guðmundur Ingi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×