Á vef Félags atvinnurekenda kemur fram að þrjár tillögur voru kynntar þar sem byggðar eru eldri tillögum bæði Samkeppniseftirlitsins og Samráðsvettvangs um aukna hagsæld.
Tillögur FA og stéttarfélaganna VR, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins ganga út á að tollar verði felldir niður af alifugla- og svínakjöti, frönskum kartöflum sem og af blómum sem ekki eru ræktuð á Íslandi. Sömuleiðis er lagt til að tollar á túlipana og rósum falli niður á tímabilum þegar innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn.
Önnur tillagan gengur út á að innlendum afurðastöðvum búvöru og vinnslustöðvum í þeirra eigu verði óheimilt að bjóða í eða sækjast eftir tollkvóta fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir og þú þriðja að tollar á mjólkur- og undanrennudufti og smjöri falli niður.
Munu skoða hvaða möguleikar séu í stöðunni
Fram kemur að fundurinn með Bjarna komi í kjölfar fundar samtakanna með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í síðustu viku. Ráðherrarnir hafi báðir boðað að þau myndu í framhaldi af fundunum skoða í sameiningu hvaða möguleikar væru í stöðunni.
„Gerðar voru bókanir við kjarasamninga FA og stéttarfélaganna í desember síðastliðnum, sem kveða á um að samtökin muni í sameiningu beita sér gagnvart stjórnvöldum til að knýja á um lækkun tolla, sem sé ein skilvirkasta leiðin til að bæta hag launþega. Í framhaldinu var farið fram á fundi með ráðherrunum. Bæði Svandís og Bjarni tóku þeirri málaleitan vel og boðuðu samtökin til fundar.
FA og stéttarfélögin bentu á að verðbólga hefði aukist á ný. Leita þyrfti allra leiða til að stemma stigu við henni og varðveita þannig þær kjarabætur sem um samdist í kjarasamningunum,“ segir á vef FA.