Innlent

Hryðju­verka­málið í upp­námi eftir frá­vísun í héraðs­dómi

Máni Snær Þorláksson skrifar
Sveinn Andri er verjandi Sindra Snæs í málinu.
Sveinn Andri er verjandi Sindra Snæs í málinu. Vísir/Hulda Margrét

Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur hefur vísað frá báðum köflum er lúta að hryðjuverkum í hryðjuverkamálinu svokallaða. 

Dómarinn kvað upp úrskurð í málinu klukkan 14:30 í dag. Báðum köflum ákærunnar er lúta að hryðjuverkum, tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka, var vísað frá dómi. Það er því óhætt að segja að málið sé í uppnámi.

Tveir eru ákærðir í málinu, Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, segir í samtali við fréttastofu að hann sé ánægður með niðurstöðuna og að um sigur sé að ræða.  

„Þetta er í samræmi við okkar væntingar,“ segir hann.

„Ákæruvaldið getur auðvitað kært þetta til Landsréttar, þeir gætu líka ákveðið að gefa út nýja ákæru sem lýtur að þessu. Svo gætu þeir bara ákveðið að láta kyrrt liggja og klára þá bara vopnalagabrotin duga, sem eru auðvitað minniháttarbrot í samanburði við hryðjuverkabrotin.“

„Þeir voru of bráðlátir“

Sveinn Andri segir að málið sé lexía. 

„Ég held að það megi líta á þetta jákvætt, að þetta sé lærdómur. Þetta er lærdómur fyrir lögreglu og ákæruvaldið. Þeir geta horft aðeins inn á við og metið það hvernig þeir geta bætt sín vinnubrögð ef og þegar svipuð aðstaða kæmi upp. Fara þá rólega af stað, fylgjast með hugsanlegum brotamönnum í einhvern tíma og rannsaka þá áfram. 

Hann segir að lögreglan þurfi að vera viss í sinni sök: „Þeir voru of bráðlátir.“

Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari. Vísir/Vilhelm

Karl Ingi Vilbergsson saksóknari segir í samtali við fréttastofu að næstu skref hjá embætti héraðssaksóknara verði að lesa úrskurðinn. Svo verði skoðað hvort málið verði kært til Landsréttar.


Tengdar fréttir

Hryðju­verka­á­kæran „hvorki fugl né fiskur“ og rök á­kæru­valdsins haldi ekki

Verjendur tveggja manna sem eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild segja verulega galla í ákærunni. Ef ákæruliðum sem snúa að hryðjuverkabrotum verði ekki vísað frá verði þetta líklega í fyrsta sinn sem ákæra sem sé jafn óljós og almennt orðuð slyppi í gegn. Saksóknari ber fyrir sig að ekki hafi verið hægt að skýra málin betur, sem dómari hefur gagnrýnt. 

Tók dæmi af bankaráni til að útskýra ákæruna í hryðjuverkamálinu

Saksóknari og verjendur í hryðjuverkamálinu svokallaða takast nú um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í brotinu. Saksóknari segir ekki unnt að lýsa ætluðum brotum ákærðu með nákvæmari hætti en gert sé í ákærunni. Hann tók sem dæmi ímyndað bankarán til að styðja þá skoðun sína að ákæran ætti að fá efnislega meðferð fyrir dómi.

Dómari tekur til skoðunar hvort vísa eigi hryðju­verkalið frá

Tveir karlmenn sem sæta ákæru fyrir skipulagningu hryðjuverka neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Þeir játuðu hluta ákærunnar sem sneri að vopnalagabrotum auk þess sem annar játaði fíkniefnabrot. Dómari ætlar að skoða hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að hryðjuverkabrotum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×