Cruz lagði frumvarpið fram ásamt Ralph Norman, fulltrúadeildarþingmanni Repúblikana. Þeir segja tilgang hámarksins vera að koma í veg fyrir að þingmenn sitji varanlega á þingi og verði þar af leiðandi ekki ábyrgir gagnvart bandarísku þjóðinni.
Þá halda þeir því fram að þingmenn sem hafi stýrt landinu lengi vinni aðeins að eigin sérhagsmunum.
Hafi aldrei sagst ætla að hætta eftir tvö kjörtímabil
Þáttastjórnandi þjóðmálaþáttarins Face the nation á sjónvarpsstöðinni CBS spurði Cruz hvers vegna hann hefði tilkynnt að hann ætli fram í þriðja skiptið, þegar hann var til viðtals í dag.
„Sjáðu til, ég er ástríðufullur baráttumaður fyrir hámarki á lengd þingsetu. Ég held að þingið myndi virka miklu betur ef öldungardeildarþingmenn mættu aðeins sitja í tvö kjörtímabil, og fulltrúar í þrjú. Ég hef lagt til stjórnarskrárbreytingarfrumvarp þess efnis að það yrði fest í stjórnarskrána. Og ef og þegar frumvarpið verður samþykkt mun ég glaður stíga til hliðar. En ég hef aldrei sagst munu einhliða fara eftir frumvarpinu,“ svaraði Cruz.