Matur

Tilkynnir endurkomu Food & Fun í mars

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Siggi Hall tilkynnti endurkomu matarhátíðarinnar Food & Fun í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni síðasta laugardag. 
Siggi Hall tilkynnti endurkomu matarhátíðarinnar Food & Fun í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni síðasta laugardag. 

„Þetta er bara lífið, þetta er eins og að vera píanóleikari, þú hættir ekkert að spila á píanó. Þú spilar bara á píanó þangað til þú deyrð,“ segir Siggi Hall í viðtali í Bakaríinu á Bylgjunni.

Aðspurður hvernig mathalla-grín áramótaskaupsins hafi lagst í sig segist Siggi hafa haft mikinn húmor fyrir því.

„Mér fannst það ósköp fyndið, mér fannst reyndar allt áramótaskaupið mjög fyndið. Mathallir eru skemmtilegt fyrirbrigði, þetta er einskonar nýsköpun í veitingamennsku,“ segir Siggi en í nóvember á síðasta ári bættist hann í hóp þeirra veitingamanna sem stunda nú rekstur í svokölluðum mathöllum.

Þeir sem vanda sig munu lifa af

Aðspurður hvort að það séu jafnvel komnar of margar mathallir á markaðinn svarar hann: 

Það má alveg útfæra það þannig að þær gætu verið orðnar of margar, en það fer allt eftir því hvernig aðsóknin er. Það getur verið of mikið af öllu en þær sem eru að gera vel og vanda sig, þær lifa af.

Viðtalið við Sigga Hall í heild sinni má nálgast í spilaranum hér fyrir neðan. 

Engin leið að hætta

Þrátt fyrir að hafa verið búinn að ákveða fyrir nokkru síðan að slaka aðeins á lífinu og veitingabransanum segist Siggi hreinlega ekki hafa staðist mátið þegar hann heyrði fyrst af hugmyndinni um Pósthús mathöll. 

„Ég átti alltaf eftir að opna svona ítalskan vín- og matarbar. Mig langaði til þess og er búinn að langa til þess í langan tíma. Það er engin leið að hætta, maður fer ekkert að hætta núna!“ segir hann og hlær. 

Matarhátíðin Food & Fun aftur á laggirnar

Matarhátíðin Food & Fun var síðast haldin hér á landi árið 2020 en hefur, eins og svo margt annað, legið í dvala síðan þá vegna takmarkanna í kjölfar heimsfaraldurs.

Siggi sem hefur verið einn af skipuleggjendum hátíðarinnar segir það því mikið gleðiefni að geta tilkynnt það formlega að hátíðin muni nú snúa aftur.

Já, ég segi þetta bara hér og nú. Food & Fun verður aftur sett á laggirnar 1. – 4. mars og að minnsta kosti fimmtán veitingahús munu taka þátt.

Um miðjan febrúar verið opnað fyrir pantanir á hátíðina í gegnum vefsíðuna og appið Dine Out en á næstu dögum munu frekari upplýsingar um hátíðina líta dagsins ljós.


Morgunþátturinn Bakaríið er á dagskrá alla laugardaga frá 9 - 12 á Bylgjunni. Hægt er að nálgast síðasta þátt í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

„Tíska er oft sett í samhengi við snobb og hégóma, ég er ekki þannig“

„Maður er alveg með svona x-ray sjón, eins og í Terminator myndunum. Fólk þarf ekki annað en að labba í átt til mín og þá sé ég oft nákvæmlega hvað þarf að gera,“ segir Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, í viðtali í Bakaríinu síðasta laugardag.   

„Ég kann ekkert að vera einhleypur“

„Maður er karlmaður sem dansar aldrei og segir bara nei við kvenfólk þegar maður á að fara út á gólf. En nú er það bara allt breytt og nú hef ég bara gaman af því að dansa,“ segir leikarinn Hilmir Snær Guðnason um harðar dansæfingar fyrir hlutverk sitt í leikritinu Mátulegir í Borgarleikhúsinu.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×