Viðskipti innlent

Hafrannsóknaskip í loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri.
Birkir Bárðarson fiskifræðingur er leiðangursstjóri. Egill Aðalsteinsson

Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar er búin að finna loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi. Skipið heldur áfram loðnuleit næstu daga vestur með Norðurlandi í sérstökum aukaleitarleiðangri sem hófst síðastliðinn miðvikudag en byrjað var á því að leita undan sunnanverðum Austfjörðum.

„Hingað til höfum við einkum verið að sjá loðnu út af Vopnafjarðargrunni þar sem veiðiskipin Polar Ammassak og Tasiilak hafa verið að veiðum en við vorum að sjá lítið af loðnu fyrir sunnan það. Síðan er eitthvað lítilsháttar að ganga með landgrunnskantinum hér sem við erum út af Langanesgrunni,“ segir Birkir Bárðarson fiskifræðingur í samtali við fréttastofu en hann er leiðangursstjóri um borð í Árna Friðrikssyni.

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er núna statt úti af Langanesi. Hér má sjá feril skipsins frá því það lagði af stað í loðnuleitina frá Hafnarfirði í síðustu viku.Hafrannsóknastofnun

„Við munum svo halda áfram að kanna útbreiðsluna vestur með kantinum út af Norðurlandi og fyrir vestan,“ segir Birkir en þetta er annar viðbótar leitarleiðangurinn sem efnt er til á þessari vertíð. Sá fyrri var í byrjun desembermánaðar og eru þeir báðir kostaðir af útgerðum uppsjávarveiðiskipa.

Vonir hafa staðið til að þessi loðnuvertíð yrði ekki minni en sú síðasta en þá veiddi íslenski flotinn 520 þúsund tonn af loðnu. Það voru því mikil vonbrigði þegar Hafrannsóknastofnun í vetrarbyrjun lagði til 218 þúsund tonna kvóta. 

Afleiðingin er sú að fyrir utan þrjá túra fyrir jól bíða íslensku útgerðirnar enn átekta með að hefja loðnuveiðar og vilja spara kvótann þar til loðnan nálgast sitt verðmætasta form. Þess í stað hefur uppsjávarflotinn verið að kolmunnaveiðum milli Færeyja og Skotlands meðan beðið er fregna af loðnuleitinni.

Víkingur AK landaði loðnu Vopnafirði þann 13. desember. Sama dag landaði Beitir NK á Norðfirði og Venus NS kom svo einnig með loðnufarm til Vopnafjarðar.Brim/Magnús Þór Róbertsson

Hafrannsóknastofnun gerir ráð fyrir að þessi aukaleiðangur geti varað í 1-2 vikur en hann verður síðan nýttur til að meta hvenær heppilegast sé að hefja hefðbundinn stofnmælingaleiðangur loðnunnar. Þá mun hitt rannsóknaskipið, Bjarni Sæmundsson, bætast við en sú stofnmæling verður alfarið kostuð af Hafrannsóknastofnun.

„Við þurfum að fá aðeins betri sýn á útbreiðslu loðnunnar áður en við ákveðum hvenær Bjarni Sæmundsson kemur með okkur í stofnmælingu,“ segir Birkir en sú mæling verður lögð til grundvallar að lokaveiðiráðgjöf á loðnu á þessari vertíð.

Þegar spurt er hvort veiðiskip verði einnig fengin með í stofnmælinguna svarar Birkir: 

„Enn sem komið er hafa veiðiskip ekki verið munstruð í mælinguna en slíkt skýrist væntanlega líka þegar við höfum betri sýn á allar aðstæður. Við höfum náttúrulega oft stutta veðurglugga til að framkvæma mælinguna og þá getur komið sér vel að mæla með fleiri skipum. En ef mælingasvæðið er vel afmarkað og góðar veðurhorfur þá geta rannsóknaskipin tvö klárað dæmið.“


Tengdar fréttir

Loðna flæðir inn í vinnslur á Vopnafirði og Norðfirði

Fyrstu loðnuförmum vertíðarinnar var landað í tveimur Austfjarðahöfnum í dag. Á Vopnafirði sögðu menn loðnuna sannkallaðan jólabónus en áratugur er liðinn frá því síðast tókst að hefja þar loðnuvinnslu fyrir jól.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×