Innherji

Tafir á inn­leiðingu gæti haft „mikil á­hrif“ á seljan­leika skulda­bréfa bankanna

Hörður Ægisson skrifar
Útgáfa sértryggðra skuldabréfa er hagkvæm leið fyrir viðskiptabankana til að fjármagna sig. Um mitt síðasta ár nam fjárhæð slíkra bréfa sem íslensku bankarnir höfðu gefið út um 600 milljörðum króna.
Útgáfa sértryggðra skuldabréfa er hagkvæm leið fyrir viðskiptabankana til að fjármagna sig. Um mitt síðasta ár nam fjárhæð slíkra bréfa sem íslensku bankarnir höfðu gefið út um 600 milljörðum króna. Vísir

Alþingi náði ekki að afgreiða fyrir jól frumvarp um breytingar á lögum um sértryggð skuldabréf, sem er sagt geta lækkað fjármögnunarkostnað íslenskra banka á tímum þegar aðstæður á mörkuðum hafa sjaldan verið verri, en fjármálaráðherra og forsvarsmenn fjármálafyrirtækja höfðu lýst því yfir að mikilvægt væri að tryggja framgang málsins fyrir áramót. Bankarnir segja brýnt að afgreiðsla frumvarpsins verði sett í forgang ef þeir eiga að geta gefið út sértryggð skuldabréf sem teljast veðhæf hjá Evrópska seðlabankanum sem aftur hafi „mikil áhrif“ á seljanleika þeirra.


Tengdar fréttir

„Umhugsunarefni“ að lífeyrissjóðir kaupi ekki sértryggðar útgáfur bankanna

Núna þegar vaxtastig fer hækkandi eftir langt tímabil þar sem áhætta var ekki rétt verðlögð þá hljóta ótryggðar skuldabréfaútgáfur bankanna að byrja að verða „aðlaðandi“ fyrir fjárfesta á borð við íslensku lífeyrissjóðina, að sögn varaseðlabankastjóra. Hann segir það jafnframt vera „umhugsunarefni“ af hverju lífeyrissjóðirnir séu ekki í meira mæli að kaupa sértryggðar útgáfur af íslensku bönkunum sem skili þeim betri ávöxtun borið saman við að lána beint út til sjóðsfélaga sinna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×