Viðskipti erlent

Vilja tengja ChatGPT við leitarvélina Bing

Samúel Karl Ólason skrifar
Tilraunir Microsoft með ChatGPT eru sagðar hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Vonast er til þess að breytingar byrji að sjást á Bing á næstu mánuðum.
Tilraunir Microsoft með ChatGPT eru sagðar hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Vonast er til þess að breytingar byrji að sjást á Bing á næstu mánuðum. EPA/JUSTIN LANE

Forsvarsmenn Microsoft vinna nú að því að tengja gervigreindartækni OpenAI, sem kallast ChatGPT, við Bing, leitarvél Microsoft. Með þessu vilja þeir saxa á þá miklu yfirburði sem Alphabet hefur á leitarvélamarkaði internetsins, með leitarvélinni Google.

Gervigreindin ChatGPT hefur notið mikilla vinsælda á internetinu undanfarna mánuði og hefur meðal annars verið látin skrifa heilu ritgerðirnar og semja sögur um hin ýmsu málefni og fólk. ChatGPT byggir á tækni fyrirtækisins OpenAI sem Microsoft hefur fjárfest í fyrir milljarð dala.

Þó gervigreindin geti svarað spurningum með röngum upplýsingum telja margir sérfræðingar að með frekari vinnu geti hún reynst Microsoft góður fengur í samkeppni við Google.

Eins og hún virkar núna greinir hún mikið magn upplýsinga sem finna má á netinu og svarar spurningum notenda á grunni þeirra upplýsinga. Gallinn er sá að gervigreindin notast jafnt við rangar upplýsingar sem hún finnur sem og réttar.

Í frétt Bloomberg er vitnað í heimildarmenn hjá Microsoft sem segja að vonast sé til þess að gervigreindin geti veitt mannúðlegri og nákvæmari svör við fyrirspurnum notenda Bing, í stað þess að svara fyrirspurnum eingöngu með hlekkjum.

Tilraunir Microsoft með ChatGPT eru sagðar hafa staðið yfir í nokkra mánuði. Vonast er til þess að breytingar byrji að sjást á Bing á næstu mánuðum. Enn er þó verið að meta nákvæmni gervigreind og það hversu fljótt hægt verði að tengja tæknina við leitarvélina.

Kveikti á viðvörunarbjöllum hjá Google

New York Times sagði frá því fyrir jól að vinsældir ChatGPT hefðu kveikt á viðvörunarbjöllum innan veggja Google. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru sagðir sjá að mögulega sé komið að því að þróun gervigreinda gæti leitt til mikilla sviptinga á sviði leitarvéla á netinu og kollvarparð rekstrarumhverfi fyrirtækisins.

Leitarvél Google hefur haft mikla yfirburði á aðrar leitarvélar, þegar kemur að fjölda notenda í rúma tvo áratugi. Þar á bæ hefur verið unnið að sambærilegri gervigreindartækni um nokkurra ára skeið og komu verkfræðingar Google til að mynda að þróun ChatGPT.

Ákveðna tregðu má þó finna meðal forsvarsmanna Alphabet með að innleiða gervigreind í leitarvél fyrirtækisins og má reka það til þess að erfitt gæti reynst að innleiða auglýsingar í svör gervigreindar við fyrirspurnum notenda. Rúmlega áttatíu prósent af tekjum Google í fyrra komu til vegna auglýsinga.


Tengdar fréttir

Þrátt fyrir allt „nautheimsk vél“ með tilheyrandi göllum

Gervigreind mun aldrei geta komið í staðinn fyrir mennska listamenn, að mati listamanns sem unnið hefur með slíka tækni. Nýr veruleiki blasi þó við - og hann hefur orðið var við áhyggjur af hinni ógurlega hröðu þróun í ákveðnum kreðsum. Við kynntum okkur nýjasta gervigreindaræðið á samfélagsmiðlum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×