Handbolti

„Við höfum bara ekki í lent í öðru eins“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ísland Ísrael. Landslið karla vetur 2022 handbolti HSÍ.
Ísland Ísrael. Landslið karla vetur 2022 handbolti HSÍ. Vísir/Hulda Margrét

Fordæmalaus eftirspurn hefur verið eftir landsliðstreyju Íslands í handbolta í aðdraganda komandi heimsmeistaramóts. Markaðsstjóri HSÍ segir treyjusöluna síðustu vikur vera á pari við síðustu 18 mánuðina á undan.

Treyjan fór í sölu fyrir rúmum tveimur vikum síðan og segir Kjartan Vídó Ólafsson, fjölmiðla- og markaðsfulltrúi HSÍ, að menn hafi pantað duglega inn af treyjum.

„Við pöntuðum mjög ríflega inn og við höfum bara ekki í lent í öðru eins, það er uppselt í öllum stærðum nema XL og XXL kvenna,“ sagði Kjartan í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Ég held að við séum, á síðustu vikum, búnir að selja nánast jafn mikið og á síðustu 18 mánuðum þar á undan,“

Hann segir ekki alla von úti fyrir þá sem eiga eftir að næla sér í treyju. Einhverjar verða til sölu í Svíþjóð þar sem íslenska liðið mun spila.

„Við vorum sem betur fer búnir að panta sendingar sem koma til Kristianstad og Gautaborgar, þannig að það fólk sem er að fara út og hefur ekki náð sér í treyju hefur möguleika á því. Hugsanlega getum við sent eitthvað af því hingað heima til að jafna þann markað sem er hér líka,“ segir Kjartan.

Vildi að fleiri treyjur hefðu verið pantaðar

Kjartan segist óska þess að sambandið hefði pantað meira inn af treyjunni, en líkt og fram kemur að ofan var ekki búist við svo gríðarlegri aukningu á eftirspurn.

„Þetta er bara miklu meira en við áttum von á,“

„Svona er bara því miður staðan með treyjurnar. Ég hefði svo gjarnan viljað hafa keypt tvær ársbirgðir, ég gerði það ekki,“ segir Kjartan.

Nokkurrar biðar sé þá að vænta eftir næstu pöntun þar sem kórónuveirufaraldurinn hafi sett strik í reikninginn hvað það varðar. Kjartan minnist á það í viðtali og fleira, en það má heyra í heild sinni í spilaranum að ofan.

Ísland hefur keppni á HM er liðið mætir Portúgal á fimmtudaginn í næstu viku, þann 12. janúar. Liðið mætir fyrst Þýskalandi í tveimur æfingaleikjum ytra um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×