Viðskipti erlent

Gær­dagurinn sá versti í átta mánuði hjá Tesla

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Mikið hefur gustað um Twitter eftir að Elon Musk gekk frá kaupum á samfélagsmiðlarisanum í október síðastliðinn.
Mikið hefur gustað um Twitter eftir að Elon Musk gekk frá kaupum á samfélagsmiðlarisanum í október síðastliðinn. EPA

Virði hlutabréfa rafbílaframleiðandans Tesla var í gær lægra en það hefur verið í meira en tvö ár. Fjárfestar í Tesla óttast að Musk einbeiti sér of mikið að samfélagsmiðlinum Twitter.

Musk hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að hann keypti Twitter og gerðist forstjóri miðilsins. Erfiðlega virðist ganga að fá fyrirtæki til þess að auglýsa á miðlinum og hafa notendur hvatt auðjöfurinn til þess að segja af sér sem forstjóri.

Þann 18. desember síðastliðinn tísti Musk skoðanakönnun. Spurningin sem hann lagði fyrir notendur miðilsins var ansi einföld, hann spurði hvort hann ætti að segja af sér sem forstjóri Twitter og tók fram að hann myndi hlýða niðurstöðum könnunarinnar.

Rúmlega 17 milljónir notenda tóku þátt í könnuninni og voru 57,5 prósent fylgjandi því að forstjórinn myndi segja af sér. Þegar niðurstaðan varð ljós sagði Musk að hann myndi standa við orð sín um leið og hann myndi finna „einhvern sem er nógu mikið fífl til að taka starfið að sér.“

Ekki er nóg með það að rekstur miðilsins hafi gengið illa heldur var Musk tímabundið steypt af stóli sem ríkasti maður heims þann 7. desember síðastliðinn. Það gerðist einmitt vegna mikillar virðisminnkunar á hlut hans í Tesla.

Guardian greinir frá því að gærdagurinn hafi verið sá versti fyrir Tesla í átta mánuði virði hlutabréfa fyrirtækisins hafi minnkað um meira en helming frá því í október síðastliðnum.

Hegðun Musk síðustu mánuðina er sögð hafa haft áhrif á traust fjárfesta í Tesla en þeir hafi nú áhyggjur af því að hann hugi of mikið að Twitter. Þar að auki hrapi virði bíla fyrirtækisins samanborið við aðra framleiðendur og búast einhverjir við því að hann verði neyddur til þess að segja starfi sínu sem forstjóri bílaframleiðandans lausu. 


Tengdar fréttir

Musk hyggst hætta þegar arf­takinn er fundinn

Bandaríski auðjöfurinn Elon Musk hyggst láta af störfum sem forstjóri samfélagsmiðlarisans Twitter þegar búið er að finna einhvern sem sé „nægilega vitlaus til að taka starfið að sér“.

Gengur illa að laða auglýsendur aftur á Twitter

Elon Musk og öðrum yfirmönnum Twitter eiga í erfiðleikum með að fá stærstu auglýsendur samfélagsmiðilsins aftur af borðinu en flestir þeirra eru hættir að auglýsa þar.

Musk tímabundið steypt af stóli

Auðjöfurinn Elon Musk tapaði titlinum „ríkasti maður heims“ um stund fyrr í dag og Bernard Arnault og fjölskylda hans, hoppaði upp í fyrsta sæti. Arnault er forstjóri LVMH, móðurfyrirtækis Louis Vuitton.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×