Jól

Bjó til skauta­svell í garðinum

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Skautasvellið hefur vakið mikla lukku.
Skautasvellið hefur vakið mikla lukku. Aðsend

Ólöf Dagný Óskarsdóttir bjó til skautasvell í garðinum sem hún segir tilvalið fyrir jólamyndatökurnar. Hún segist vera mikil stemningsmanneskja og hélt stærðarinnar skötuboð fyrr í kvöld. Ólöf Dagný segir svellið hafa vakið mikla lukku.

Ólöf Dagný bauð Elísabetu Ingu Sigurðardóttur, fréttamanni Stöðvar 2, í skötuveislu fyrr í kvöld. Hún segir hefðina árlega - það sé engin Þorláksmessa án hinnar kæstu skötu.

„Þetta er búið að vera alveg síðan ég var lítil, mamma bauð alltaf öllum heim. Og síðan þegar hún var orðin níutíu ára þá treysti hún sér ekki lengur þannig að ég tók við,“ segir Ólöf Dagný.

Hún eldar skötuna úti og segir að þeim, sem ekki þyki skatan góð, sé boðið upp á pizzur. Sjálfri þyki henni skatan æðisleg.

Minnsta vesenið að elda úti

„Það eru svona alltaf einhverjir sem eru að kvarta en þetta er minnsta vesenið; að elda þetta úti. Svo þarf maður að hreinsa allt og lofta út og þá er maður góður fyrir veisluna á morgun.“

Í tilefni jólanna ákvað Ólöf Dagný að búa til skautasvell í garðinum heima. Aðspurð situr hún ekki á svörum:

„Ég er mikil stemningsmanneskja. Ég ákvað bara að skella í þetta, þegar ég heyrði að það yrði frost fram yfir áramót - að hafa skautasvell. Og hafa þetta svona eins og „photo-booth“, þannig að nú er hægt að taka myndir af sér hér fyrir jólakortin – þó að seint sé,“ segir hún og hlær.

Svellið er engin smásmíði.

„Ég setti bara plast, smíðaði grind og fór svo með nokkrar fötur af vatni, því það er náttúrulega allt frosið í slöngunni, þannig ég hellti bara í þetta þangað til að þetta væri orðið nokkuð gott. En ég ákvað fyrir gestina að setja teppi svo að enginn myndi slasast hér í kvöld.“

Svellið er hið jólalegasta.Aðsend

Tengdar fréttir

„Maður er af­­klæddur í for­­stofunni“

Þorláksmessa og skötulykt leggur yfir landið að venju, mörgum til ama en ekki þeim sem biðu í röð eftir því að fá að bragða á ilmandi skötunni á Lauga-ás. Í síðasta sinn þar sem staðnum verður formlega lokað eftir daginn í dag.








×