Innlent

Gleðileg jól, kæru lesendur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Austurvöllur er jólalegur á aðventunni.
Austurvöllur er jólalegur á aðventunni. Vísir/Vilhelm

Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sendir lesendum Vísis nær og fjær sínar bestu óskir um gleðileg jól.

Fréttavakt verður á Vísi yfir hátíðirnar fyrir utan aðfangadagskvöld þar sem blaðamenn Vísis fagna jólum nema dragi verulega til tíðinda.

Sjónvarpsfréttatími Stöðvar 2 var í hádeginu í dag og svo verða kvöldfréttir á sínum stað á jóladag klukkan 18:30.

Það er jólalegt í Kópavogi þetta árið.Vísir/Vilhelm

Við minnum á að hægt er að senda ábendingar um allt sem fréttnæmt má heita á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.

Að neðan má sjá útsendinguna á Stöð 2 Vísi sem aldrei sefur. Þar má sjá nýlegar fréttir, vinsælar klippur og annála sem fréttastofa hefur unnið í desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×