Viðskipti erlent

Raf­mynta­mógúllinn fluttur með fanga­flugi til New York

Kjartan Kjartansson skrifar
Bahameyskir lögreglumenn fylgja Sam Bankman-Fried í dómsal í Nassá þar sem gengið var frá framsali hans til Bandaríkjanna í gær.
Bahameyskir lögreglumenn fylgja Sam Bankman-Fried í dómsal í Nassá þar sem gengið var frá framsali hans til Bandaríkjanna í gær. AP/Rebecca Blackwell

Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, lenti í New York til að svara til saka í einu stærsta fjársvikamáli Bandaríkjanna í nótt eftir að hann var framseldur frá Bahamaeyjum. Tveir samstarfsmenn hans hafa þegar játað sig seka um glæpi.

Bandarískir alríkissaksóknarar ákærðu Bankman-Fried fyrir fjársvik, peningaþvætti og ólöleg framlög til stjórnmálaframboða í tengslum við gjaldþrot FTX sem var þriðja stærsta rafmyntakauphöll heims. Hann er meðal annars sakaður um að hafa nota milljarða dollara af innistæðum viðskiptavina FTX til þess að halda Alameda Research, vogunarsjóði sínum, á floti.

Fyrr í vikunni féllst Bankman-Fried á að verða framseldur frá Bahamaeyjum, þar sem FTX hafði höfuðstöðvar, til Bandaríkjanna. Hann var fluttur með flugi og lenti í New York í nótt. Breska ríkisútvarpið BBC segir mögulegt að hann komi fyrir dómara í dag. Bankman-Fried, sem er þrítugur, gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.

Játuðu til að fá mildari refsingu

Staða Bankman-Frieds, sem segist engin svik hafa framið, virðist þrengjast með hverjum deginum sem líður. Saksóknarar upplýstu í gær að tveir nánir samstarfsmenn hans, þau Carolyn Ellison, fyrrverandi forstjóri Alameda Research, og Gary Wang, einn stofnenda FTX, hafi játað sig sek um ýmis konar fjársvik og vinni nú með yfirvöldum.

AP-fréttastofan segir að þau Ellison og Wang hafi skrifað undir játningu gegn því að saksóknarar lofuðu að mæla með því að þau fái mildari refsingu. Ekki hafði verið greint frá því áður að þau væru sökuð um glæp. Ellison, sem er einnig fyrrverandi kærasta Bankman-Frieds, hefði getað átt yfir höfði sér allt að 110 ára fangelsisdóm en Wang fimmtíu ár. Þau ganga bæði laus gegn tryggingu og sæta farbanni.

Verðbréfaeftirlit Bandaríkjanna (SEC) kærði Ellison (28 ára) og Wang (29 ára) fyrir að vera virkir þátttakendur í samsæri Bankman-Frieds um að svíkja fjárfesta og svindla á viðskiptavinum. Wang hafi smíðað hugbúnað sem gerði Bankman-Fried kleift að færa fé viðskiptavina FTX til Alameda Research. Ellison hafi nýtt fjármunina til að fjármagna viðskipti vogunarsjóðsins.


Tengdar fréttir

Bank­man-Fri­ed sam­þykkir að vera fram­seldur

Lögmaður Sams Bankman-Frieds, stofnanda FTX, segir hann tilbúinn að svara til saka í Bandaríkunum vegna falls rafmyntakauphallarinnar. Undirbúningur að framsali hans til Bandaríkjanna hefjist nú.

Rann­saka kosninga­fram­lög FTX-for­kólfa

Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir beina sjónum sínum að framlögum stjórnenda rafmyntafyrirtækisins FTX í kosningasjóði stjórnmálamanna. Þeir voru einir stærstu fjárhagslegu bakhjarlar flokkanna tveggja fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði.

„Gamal­dags fjár­dráttur“ hjá FTX

Skiptastjóri fallna rafmyntafyrirtækisins FTX segir að það sem átti sér stað innan þess hafi ekki verið neitt flóknara en „gamaldags fjárdráttur“. Sam Bankman-Fried, stofnandi FTX, er ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×