Neytendur

Bíó­miðinn kominn yfir tvö þúsund kall og neyt­endur jafn hneykslaðir og 2008

Kristín Ólafsdóttir skrifar

Þau tímamót urðu nýverið að verð á bíómiða er í fyrsta sinn komið yfir tvö þúsund krónur. Neytendur sem fréttastofa tók tali sögðu verðið sláandi en lýsandi fyrir efnahagsástandið í landinu. Þá bíti verðbólgan fast í jólainnkaupunum þetta árið.

Það var í apríl 2008, rétt fyrir hrun, sem verð á bíómiða fór yfir þúsund krónur í fyrsta sinn. Og neytendur voru óhressir, eins og þessi bloggfærsla sýnir glögglega.

„Verð á bíómiðanum var að mínu mati alveg hneykslanlega hátt, og núna er það að hækka enn frekar, miðinn kominn upp í þúsundkallinn og þá áttu eftir að kaupa poppið, kókið og nammið,“ ritar höfundur.

Vísir/Sara

Og nú, fjórtán árum síðar, er bíómiðinn kominn yfir tvö þúsund krónur. 2.045 krónur, nánar tiltekið, er nýtt almennt miðaverð í Sambíóunum, Háskólabíó og Smárabíó. Í öðrum helstu bíóhúsum hangir miðinn undir tvö þúsund kallinum. En bara rétt svo. Og eins og fyrir fjórtán árum voru viðskiptavinir Kringlunnar, sem fréttastofa ræddi við í gær, hneykslaðir á nýju miðaverði.

Engar jólagjafir handa mömmu

Miði í bíó er þó líklega ein ódýrasta tveggja tíma skemmtun sem völ er á á landinu, eins og Alfreð Ásberg Árnason hjá Sambíóunum bendir á. Hækkunin sé langt í frá sambærileg við miklar hækkanir annars staðar. Og þá er ekki úr vegi að fá nokkur dæmi um núverandi verðmiða á ýmsum vörum sem jafnan er neytt til dægrastyttingar og/eða yndisauka.

Vísir/Sara/hjalti

Pylsa á bæjarins bestu kostar 600 krónur eftir talsverða hlutfallslega hækkun síðustu misseri. Verð í ísbúðum hefur hækkað; lítill þeytingur í Ísbúð Vesturbæjar kostar 1.550 og tvöfaldur cappuccino á Te og kaffi er á 835 krónur. Þá fær maður varla ódýrari bjór á barnum en á 1.450, sem einmitt er verðið á hálfum lítra af Tuborg á Dönsku kránni. En dæmi eru um að bjór á dælu fari upp í 1.890 krónur á veitingastöðum.

Hagstofan birtir verðbólgutölur á fimmtudag og Landsbankinn spáir því að verðbólgan hækki aftur, upp í 9,6 prósent, áður en hún hjaðnar aftur í janúar. Neytendur finna vel fyrir verðhækkunum nú í aðdraganda jóla.

„Ég get ekki einu sinni keypt jólagjafir fyrir mömmu mína,“ segir Magnús Ingi Halldórsson, ungur starfsmaður í Kringlunni. Viðtal við hann og aðra Kringlugesti í jólaösinni má nálgast í fréttinni í spilaranum fyrir ofan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×