Jól

Jóla­daga­tal Vísis: Mugi­son tekur lagið með sjúskaðan, for­láta gítar

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Mugison á tónleikunum Bylgjan órafmögnuð.
Mugison á tónleikunum Bylgjan órafmögnuð. Vísir/Rakel Rún

Mugison á lag dagsins í Jóladagatali Vísis. Lagið sem um ræðir er Kletturinn, sem hann tók á tónleikunum Bylgjan órafmögnuð fyrir rétt rúmu ári.

Í samtali við kynni kvöldsins, Völu Eiríks, sagði Mugison söguna á bak við gítarinn sinn, sem var orðinn ansi sjúskaður að sjá. 

„Ég veit ekki alveg hvað þetta er löng saga en ég ætla að reyna að koma með stuttu útgáfuna. Emiliana Torrini fékk mig til að hita upp fyrir sig fyrir fimmtán árum síðan í útlöndum og ég fór geggjað spenntur út með gítarinn minn.“

Þegar tónlistarmaðurinn sat inni í flugvélinni á flugvellinum í Glasgow sá hann þegar starfsfólk flugvallarins kastaði gítartöskunni á vagn, en það fór ekki betur en svo að hún endaði á jörðinni.

„Hann brotnaði þannig að mig vantaði gítar.“

Mugison hafði nýlega fengið greitt milljón fyrir verkefni. Hann var á þessum tíma með þriggja milljón króna yfirdrátt en datt ekki í hug að borga hann niður heldur var stefnan tekin rakleiðis á gítarverslun.

Lag dagsins er Kletturinn með Mugison








×