Ísland í þriðja sæti World Talent Ranking
![Úttekt IMD leiðir í ljós að helstu veikleikar Íslands liggi í útfærslu iðnnáms. Þar vermum við 42. sætið af 63.](https://www.visir.is/i/3BA758A6119FD2605AD204F43EF0531E1A2C72A388BE189B11C0E8681649F99F_713x0.jpg)
Ísland skipar þriðja sæti í World Talent Ranking (WTR) 2022 úttektar IMD viðskiptaháskólans í Sviss og færist upp um fjögur sæti frá fyrra ári. Úttektin metur að hvaða leyti ríki þróa, laða að og halda í hæft fólk til að viðhalda þeim mannauði sem stuðlar að langtímaverðmætasköpun. Sviss er í fyrsta sæti listans, sjötta árið í röð, af 63. ríkjum. Svíþjóð, Noregur og Danmörk raða sér í annað, fjórða og fimmta sæti úttektarinnar.