Jól

Herra Hnetu­smjör og Birgitta Hauk­dal gefa út nýtt jóla­lag saman

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal.
Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal. Vísir/Vilhelm

Idol dómararnir Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal hafa gefið út nýtt jólalag saman. Lagið kallast Cashmere Draumur. 

„Ég hef farið varlega í þetta því það er strembið að gera gott jólalag,“ sagði rapparinn Herra Hnetusmjör í viðtali hjá Ívari Guðmunds á Bylgjunni í dag. Hann gaf til kynna að kannski væri jólaplata væntanleg frá honum í náinni framtíð. Platan væri þá eingöngu með frumsömdum jólalögum. 

Lagið Þegar þú blikkar sem hann gerði með BÓ og nýja jólalagið Cashmere Draumur verða þá hugsanlega á plötunni. 

„Engin Cover, allt ný lög,“ segir Herra Hnetusmjör um plötuna sem hann myndi vilja gera.

„Ég nenni ekki að vera að syngja einhver karíókí lög.“

Hann vill bara gera þetta með kanónur með sér og kom Birgitta Haukdal ein til greina fyrir þetta lag. 

Lagið þeirra Cashmere Draumur má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Cashmere Draumur - Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal

Hér fyrir neðan má hlusta á viðtal Ívar Guðmunds við Herra Hnetusmjör.








×