Innherji

Heimilin bregðast við hærri vöxtum og færa sig yfir í verðtryggð íbúðalán

Hörður Ægisson skrifar
Ný verðtryggð útlán bankanna með veði í íbúð námu tæplega 7,9 milljörðum króna í október, að meirihluta á föstum vöxtum, á meðan óverðtryggð íbúðalán voru á sama tíma aðeins rúmlega 2,8 milljarðar.
Ný verðtryggð útlán bankanna með veði í íbúð námu tæplega 7,9 milljörðum króna í október, að meirihluta á föstum vöxtum, á meðan óverðtryggð íbúðalán voru á sama tíma aðeins rúmlega 2,8 milljarðar. Vísir

Hækkandi vaxtastig til að reyna stemma stigu við mikilli verðbólgu hefur þýtt að heimilin eru núna í fyrsta sinn frá því í árslok 2017 að sækjast í meira mæli eftir verðtryggðum íbúðalánum en óverðtryggðum hjá bönkunum. Seðlabankastjóri hefur margsinnis varað við endurkomu verðtryggingarinnar á íbúðalánamarkaði, sem myndi meðal annars draga úr virkni peningastefnunnar, ef verðbólgan fer að festa sig í sessi.


Tengdar fréttir

Bankarnir hafa fimmfaldað útlán sín til fyrirtækja milli ára

Eftir vísbendingar um að það væri farið að hægja á miklum útlánavexti viðskiptabankanna til atvinnufyrirtækja í ágúst þá sýna nýjar tölur Seðlabankans að hann tók við sér kröftuglega á ný í liðnum mánuði. Á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs þá nema ný útlán bankanna til fyrirtækja samtals um 213 milljörðum króna borið saman við aðeins 44 milljarða á sama tímabili fyrir ári.

Ekki tíminn núna fyrir arðgreiðslur hjá bönkunum, segir seðlabankastjóri

Umrót á erlendum fjármála- og lánamörkuðum þýðir að meiri ástæða en ella er fyrir íslensku viðskiptabankanna að gæta betur að lausafjárstöðu sinni. Eftir mikla útlánaþenslu eru merki um að bankarnir séu farnir að draga úr lánum sínum til fyrirtækja en þrátt fyrir að þeir standi afar sterkt, með betri eiginfjárstöðu en flestir evrópskir bankar, þá verða þeir að „leggja áherslu á gætni“ við þessar aðstæður, að sögn seðlabankastjóra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×