Neytendur

Vefurinn bilaður og kaup­glaðir Ís­lendingar fylla búðir Elko

Jakob Bjarnar skrifar
Elko í Lindum í Kópavogi. Stærsta rekstrareining Elko-búðanna en næst stærst er vefverslunin en vefurinn er nú bilaður sem þýðir líklega það að enn fleiri mæta í búðirnar sem nú eru troðfullar af kaupglöðum Íslendingum.
Elko í Lindum í Kópavogi. Stærsta rekstrareining Elko-búðanna en næst stærst er vefverslunin en vefurinn er nú bilaður sem þýðir líklega það að enn fleiri mæta í búðirnar sem nú eru troðfullar af kaupglöðum Íslendingum. vísir/vilhelm

Arinbjörn Hauksson markaðsstjóri Elko segir fyrirliggjandi að landsmenn skipuleggi heildarkaup ársins í kringum afsláttardaga. Afsláttardagar á borð við Svartan föstudag hafi klárlega gerbreytt kauphegðun landsmanna.

„Það var röð fyrir utan allar verslanir í morgun. Full verslun í Lindum strax í morgun, á Akureyri og í Skeifunni,“ segir Arinbjörn í samtali við Vísi.

Söluvefurinn bilaður á langmesta söludegi ársins

Svo virðist sem annáluð kaupgleði Íslendinga sé síst í rénun þrátt fyrir nýlega og umdeilda stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Bilun var á vef Elko í gærkvöldi og í dag sem Arinbjörn segir afar óheppilegt enda sé um að ræða langstærsta söludag ársins í dag, á Svörtum föstudegi.

„Það er stórt teymi sem vinnur að viðgerð enda er um að ræða einn stærsta söluvef landsins í smásöluverslun. Við sjáum til. En þetta er bagalegt því vefverslunin er mikilvæg, stærsta rekstrareining Elko fyrir utan Lindir.“

Arinbjörn Hauksson markaðsstjóri Elko segir það vissulega afar óheppilegt að söluvefur keðjunnar sé bilaður nú á þessum helsta söludegi ársins.aðsend

Arinbjörn segir að þeir verði að sjá hvernig fer en bilunin er ekki vegna álags heldur einhverjar villur í kerfinu sem gerðu vart við sig. Og hann telur að þetta hafi leitt til þess að fólk hafi brugðið undir sig betri fætinum og steðjað á staðinn.

Markaðsstjórinn segir allt leggjast á eitt hvað varði að hinn svarti föstudagur sé helsti söludagur ársins. Margir vilji nýta þennan dag til að ganga frá jólagjöfum en kannanir hafi leitt í ljós að meðal-Íslendingurinn gefi tíu gjafir og fleiri. Því muni um minna þegar afslættir eru góðir.

Elko sprengi ekki upp verð til að gefa svo ríflega afslætti

Lengi hefur verið talað um það að verslunarmenn freistist til að hækka verð á vörum sínum áður en að afsláttardögum kemur til að geta svo auglýst ríflega afslætti. Arinbjörn segir það sannarlega ekki eiga við þá í Elko. Undirbúningur fyrir Svartan föstudag hefjist hálfu ári áður, og um sé að ræða samstillt átak verslunarinnar og birgja; að geta boðið sem hagstæðast verðið.

„Þá brugðum við á það ráð að birta verðsögu vörunnar. Sem þýðir gegnsæi gagnvart viðskiptavinum og eykur aðhald á okkur.“

Spurður hvaða vörur það séu vinsælastar segir Arinbjörn það í raun allan skalann, því fólk noti tækifærið og kaupi nú jólagjafir. En nefnir þó að sjónvörp séu ávallt vinsæl þegar góður afsláttur býðst.


Tengdar fréttir

Löggan býður upp á Black Fri­day til­­­boð sem allir vilja missa af

Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að í dag er Svartur föstudagur. Fólk er hvergi óhult fyrir auglýsingum fyrirtækja sem keppast um að bjóða sem best tilboð. Í dag birtist þó heldur óhefðbundin auglýsing, þegar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsti „Black Friday“ tilboð á umferðasektum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×